Ari Trausti hvergi banginn í baráttunni. Kveðst taka fylgi frá Þóru og sitjandi forseta
Í einni skoðanakönnun er sagt sjást að ég taki fylgi frá bæði Þóru Arnórsdóttur og sitjandi forseta. Í annarri kemur fram að ég á allnokkuð fylgi innan Vg og nú er látið að því liggja að Sjálfstæðismenn hafi einhverjir hug á að kjósa mig. Allt gæti þetta bent til þess að ég hafi þann breiða grunn sem hollt er fyrir forseta Íslands að standa á, segir Ari Trausti Guðmundsson jarðvísindamaður og frambjóðandi til embættis forseta Íslands.
Ari Trausti segir að afar margir kjósendur séu ýmist óákveðnir eða svari ekki í í skoðanakönnunum og það gefi honum góðar vonir:
Það gæti verið góðs viti fyrir mig.
Ari Trausti heimsótti tölvuleikjafyrirtækið og nýsköpunariðjuna CCP í Reykjavík í gær. Hann ræddi við starfsfólk í hádegishléinu og svaraði fyrirspurnum. Ari Trausti þekkir innviði fyrirtækisins ágætlega því hann vann við sjónvarpsefni um það í þáttaröð um nýsköpun í iðnaði sl. vetur. Þættirnir bíða sýningar hjá Sjónvarpinu þar til kosningarnar eru yfirstaðnar.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
