Laugardagur 19.05.2012 - 15:59 - Ummæli ()

Spéspegill íslenskrar samtíðar í áratugi. Sigmund Jóhannsson Baldvinsen er látinn

Sigmund með Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra í Eyjum þegar íslenska ríkið keypti myndasafn hans.

Uppfinningamaðurinn og teiknarinn Sigmund Jóhannsson Baldvinsen lést í morgun, 81 árs að aldri eftir erfið veikindi.  Hann var einn þekktasti fjölmiðlamaður þjóðarinnar um áratugaskeið gegnum skopmyndir sínar sem birtust reglulega í Morgunblaðinu.

Frá þessu er greint á vef Eyjafrétta. Sigmund var einnig þekktur fyrir uppfinningar sínar en hann hafði mikinn áhuga á öryggismálum sjómanna og hannaði m.a. sjálfvirkann sleppibúnað fyrir björgunarbáta sem hefur bjargað mörgum mannslífum.
Sigmund Jóhannsson Baldvinsen fæddist 22. apríl 1931 í Noregi og kom til Íslands þriggja ára gamall. Faðir Sigmund var íslenskur en móðir hans norsk. Sigmund var kvæntur Helgu Ólafsdóttur. Þau áttu tvo syni, Ólaf Ragnar og Hlyn. Áður átti Sigmund soninn Björn Braga.

Sigmund var menntaður vélstjóri. Fyrsta mynd hans í Morgunblaðinu birtist 25. febrúar 1964 og tengdist Surtsey og fyrstu landgöngu þar. Í Heimaeyjargosinu árið 1973 varð Sigmund fastráðinn við Morgunblaðið og var skopmyndateiknun lengi hans aðalstarf.

Sigmund myndskreytti einnig  bækur og hefur meðal annars unnið í samstarfi við Árna Johnsen.

Þann 15. desember 2004 keypti íslenska ríkið 10 þúsund teikningar eftir Sigmund eftir tillögu Halldórs Ásgrímsson þáverandi forsætisráðherra og hafa þær verið gerðar aðgengilegar fyrir almenning á Netinu, sjá HÉR. Er um að ræða u.þ.b. 10.000 myndir.

Í ávarpi sem forsætisráðherra flutti af því tilefni sagði m.a.:

Teikningar Sigmúnds eru á sinn hátt aldarspegill þjóðarinnar og má með þeim skoða sögu íslenskra stjórnmála, atvinnulífs og menningar.

Sigmund lenti í málaferlum út af myndum sínum. Þýskur leynilögreglumaður var fenginn til landsins til að vinna að lausn Geirfinnsmálsins og Sigmund teiknaði skopmynd þar sem sást SS merki á búningi leynilögreglumannsins. Ritstjórar Morgunblaðsins voru dæmdir en Sigmund slapp við dóm því það vantaði eftirnafn hans við skopmyndina.

Mjög umdeilt var er Ólafur Stephensen, ritstjóri Morgunblaðsins, ákvað að hætta með teikningar Sigmunds í blaðinu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is