Bubbi spyr: Hvers vegna fær maður gífuryrði og svívirðingar ef maður styður Ólaf Ragnar?
Hvers vegna þarf fólk að nota gífuryrði og svívirðingar þó svo maður segist styðja Ólaf Ragnar? Þessari spurningu veltir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens fyrir sér.
Bubbi ræðir forsetakosningarnar á fésbókarsíðu sinni og hann veltir fyrir sér hvort stuðningsfólk Þóru lendi í því sama?
Hvað hefði fólk sagt hefði verið birt mynd af Þóru í nákvæmlega í sömu stöðu og Ólafur var sýndur í Fréttablaðinu í gær?
Bubbi segir að þegar bent sé á pólitíska fortíð Þóru fái menn yfir sig fúkyrðaflaum en ekki vitræna umræðu.
Og hann beinir spjótum sínum að Ríkisútvarpinu:
Það sér hver heilvita maður að RÚV er í vægast sagt vandræðalegri stöðu í þessum kosningum vegna tengsla Þóru við alla þarna innborðs og fólk er mannlegt og það er mannlegt að styðja vin sinn, ef ekki opinberlega þá bakvið tjöldin – þannig er það bara, sagan hefur kennt okkur það :-)
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is