Íslenskt efnahagslíf í brennidepli hjá Wall Street Journal. Gengisfelling krónunnar skipti sköpum
Hálfu fjórða ári eftir algjört hrun í efnahagsmálum á Íslandi er furðumikill uppgangur í landinu. Atvinnuleysi er að minnka og útflutningsgreinar hafa það mjög gott, segir í fréttaskýringu stærsta viðskiptablaðs heims, The Wall Street Journal, nú um helgina. Lykillinn fólst í gengisfellingu krónunnar.
Blaðamaður WSJ var hér á landi á dögunum og sótti m.a. Vestmannaeyjar heim. Í fréttaskýringu hans er m.a. rætt við útgerðarmenn og fleiri aðila í sjávarútvegi, Gylfa Magnússon dósent og fyrrverandi ráðherra, Jón Daníelsson doktor í hagfræði við London School of Economics og fleiri.
Þar segir meðal annars:
Árið 2008 var Ísland fyrsta fórnarlamb fjármálakreppu sem síðan hefur farið um evrusvæðið og gæti nú leitt af sér frekari hamfarir: Grikkland færist nær því að yfirgefa evruna með braki og brestum, Spánn riðar til falls vegna veikleika í bankakerfinu og þýskir stjórnmálamenn eru að velta fyrir sér hvernig hægt sé að halda öllu saman.
Á sama tíma er hagvöxtur á Íslandi. Atvinnuleysi er að minnka. Hægt hefur á brottflutningi.
Og skýringin, að mati Wall Street Journal, er ekki síst þessi:
Ísland hefur umtalsvert forskot á evruríki í vandræðum — gjaldmiðil sem hægt var að gengisfella. Þannig hefur tekist að snúa halla yfir í afgang og laga hagkerfið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is