Mánudagur 21.05.2012 - 13:37 - Ummæli ()

Á fimmta hundrað gesta fögnuðu með forsetanum – Myndir frá opnunarhátíðinni

Dorrit Moussaieff, forsetafrú, ásamt Nínu Dögg og Gísla Erni. Fyrir aftan þau stendur forsetinn og flytur ávarp.

Á fimmta hundrað gesta sóttu opnunarhátíð kosningamiðstöðvar Ólafs Ragnars Grímssonar að Laugavegi 78  í gær. Forsetinn segir að þangað hafi mætt fjölmargir sem hann hafði ekki hitt áður til að lýsa yfir stuðningi.

Opnunarhátíðin stóð frá klukkan 14 og fram til klukkan 17 í gær. Auk þess sem Ólafur Ragnar flutti ávarp sungu þeir Bubbi Morthens og Geir Ólafs nokkur lög og Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filipusdóttir úr Vesturporti fluttu ljóð.

Forsetinn var ánægður með hvernig til tókst, en á Facebook síðu sinni segir hann:

Góður þverskurður af þjóðinni. Fjölmargt fólk sem ég hef ekki hitt áður kom nú til að lýsa yfir stuðningi. Fyrr um daginn hafði nýkjörinn biskup verið með Ísfirðingamessu, þaðan komu ýmsir beint í Miðstöðina. Einnig hafði verið Siglfirðingahátíð og nokkur hjón komu í Miðstöðina á eftir.

Dorrit var sömuleiðis ánægð, og þá sérstaklega með framlag listamannanna.

Skemmtilegt hvað margir buðust til að hjálpa til í kosningaundirbúningnum. Nína Dögg og Gísli Örn lásu ljóð, Bubbi Morthens söng og margir tóku sporið þegar Geir Ólafs birtist og tók lagið,

segir hún á Facebook. Hér að neðan má sjá myndir af opnuninni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is