Greiða alla ævi í lífeyrissjóð en horfa á fjármunina gufa upp. Ásmundur kveðst hafa samviskubit
Ásmundur Stefánsson, fyrrverandi forseti ASÍ, segist hafa samviskubit yfir sínum þætti sem verkalýðsforkólfur og síðar bankamaður að hafa hvatt tólk til að greiða í lífeyrissjóð og sýna þannig fyrirhyggju í fjármálum.
Þetta kom fram á fundi sem haldinn var í dag um lífeyrismál. Ýmsar hugmyndir hafa verið settar fram um þátttöku lífeyrissjóðanna í aðgerðum til að bæta stöðu heimilanna, en Ásmundur hvatti forsvarsmenn lífeyrissjóðanna til að standa í lappirnar gagnvart ríkisvaldinu. Fjármunir þeirra eigi að fara í lífeyri sjóðfélaga en ekki annað.
Á fundinum viðurkenndi Ásmundur að hann hefði ekki haft hugmyndaflug til að láta sér detta í hug að stjórnvöld myndu ganga jafn langt í tekjutengingu ellilífeyris eins og raun ber vitni. Staðreyndin sem blasti við væri að verkakona á lágmarkslaunum væri jafnsett hvort sem hún hefði greitt í lífeyrissjóð alla sína ævi eður ei.
Um tekjutenginguna sagði Ásmundur ennfremur:
Fyrir fyrstu sjötíu þúsundin rúmlega þá færðu ekki krónu. Það mætist króna á móti krónu, það sem minnkar frá almannatryggingunum og það sem þú færð úr lífeyrissjóði og svo dregur úr þessari skerðingu eftir því sem hærra gengur í skalann þannig að það má segja að þetta sé óvenjulegur skattstigi, það er að það er tekið mest af þeim sem minnst hafa og minna af þeim sem eru hærri.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
