Mánudagur 21.05.2012 - 16:50 - Ummæli ()

Gangi Bretland úr ESB yrði það álíka einangrað og Ísland

Kenneth Clarke, dómsmálaráðherra, Bretlands.

Kenneth Clarke, dómsmálaráðherra Bretlands, segir hugmyndir um að Bretland gangi úr Evrópusambandinu „hættulegar“. Slíkt myndi hafa í för með sér algjöra einangrun fyrir Bretland og skipa landinu á sama stall og Ísland.

Þær raddir verða sífellt háværari um að boðað verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Bretlands að ESB.

Clarke, sem er sá ráðherra innan ríkisstjórnar Davids Cameron sem þykir hvað hlynntastur Evrópusambandinu, varar stórlega við slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ég get ekki hugsað mér neitt meira óviðeigandi við núverandi aðstæður og ég persónulega get ekki ímyndað mér neitt hættulegra en að Bretland yfirgefi Evrópusambandið og ákveði um leið að taka upp algjöra einangrun eins og Ísland og fleiri ríki,

segir Clarke við Sky fréttastofuna. Bætti hann því við að ákall um þjóðaratkvæðagreiðslu, ekki síst úr herbúðum Verkamannaflokksins, sé einungis til þess fallið að koma ríkisstjórninni í neyðarlega stöðu.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is