Skoða málsókn á hendur yfirmönnum og stjórn Sparisjóðs Keflavíkur

Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður, ætlar að fara yfir mögulega málsókn á hendur fyrrum stjórnendum Sparisjóðs Keflavíkur.
Stofnfjáreigendur í Sparisjóði Keflavíkur íhuga nú hvort höfða eigi mál á hendur yfirmönnum, stjórn og endurskoðendum sparisjóðsins. Það kemur hugsanlega í ljós í næstu viku þegar aðalfundur Samtaka stofnfjáreigenda verður haldinn.
Aðalfundur Samtaka stofnfjáreigenda í Sparisjóðnum í Keflavík verður haldinn miðvikudaginn 30. maí í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Í tilkynningu segir að áhugi sé fyrir því að vera með fjarfundabúnað á fundinum svo að sem flestir stofnfjáreigendur geti fylgst með.
Á fundinum verður skoðað hvort tilefni sé til málshöfðunar gegn fyrrum stjórnendum bankans.
Það virðist hafa myndast áhugi með fólks,á því að skoða málsókn á hendur yfirmönnum, stjórn og endurskoðendum Sparisjóðsins í Keflavík,
segir í tilkynningunni. Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður samtakanna, mætir á fundinn og kynnir fyrir stofnfjáreigendum hvernig staðið verður að málaferlum, verði af þeim.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is