Mánudagur 21.05.2012 - 18:16 - Ummæli ()

Stjórnvöld undirbúa aðgerðir vegna hugsanlegs falls evrunnar

Íslensk stjórnvöld hófu þegar í fyrra að undirbúa viðbrögð við mögulegu falli evrunnar. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að komi til þess að evran hrynji muni það hafa víðtæk áhrif fyrir íslenskan efnahag.

Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði Steingrím J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, út í það á Alþingi hvort stjórnvöld væru á einhvern hátt farin að undirbúa viðbragðsáætlun vegna mögulegs falls evrunnar. Benti Illugi á að raunveruleg hætta sé á að Grkkland neyðist til að yfirgefa evrusamstarfið og hætta sé á „gríðarlegum efnahagsþrengingum“ fari svo að evran hrynji.

Steingrímur sagði að almennt sé talið að evruríkin geti staðið það af sér þótt Grikkland yfirgefi evruna eða að þar komi til greiðslufalls. Áhyggjur manna beindust hins vegar að því að vandinn breiddist út til annarra og stærri ríkja.

Steingrímur upplýsti að farið hafi verið yfir málið, bæði í fyrra og á þessu ári, í ráðherranefnd um efnahagsmál, nefnd um fjármálastöðugleika og á vettvangi ríkisstjórnar.  Hafa þessir hópar velt upp ýmsum möguleikum, svo sem með tilliti til stærð gjaldeyrisvaraforðans.

Steingrímur sagði að engin leið væri að sjá fyrir hversu víðtæk og alvarleg áhrifin verða ef staðan versnar. Þó sé ljóst að um er að ræða mikilvæga útflutningsmarkaði fyrir Íslendinga og áhrifin á sjávarútveg og ferðaþjónustu yrðu umtalsverð. Skuldavandinn hafi þó enn sem komið er ekki haft teljandi áhrif á útflutning þjóðarbúsins.

Illugi óskaði eftir því að efnahagsráðherra skilaði skýrslu um þann viðbúnað sem fyrir hendi er. Bætti hann því enn fremur við, að það skjóti skökku við að sækja um aðild að ríkjasambandi, þar sem skilyrðið er upptaka evru, á sama tíma og unnið sé að viðbúnaðaráætlun vegna mögulegs hruns evrunnar.

Ráðherra sagði sjálfsagt að gefa þinginu skýrslu væri eftirspurn eftir því. Hins vegar væri ekki ráðlegt að stíga varlega til jarðar í samskiptum við ESB. Ekki ætti að gera út á þessa erfiðleika sem þar eru til staðar, slíkt væri ekki stórmannlegt.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is