Meirihluti í utanríkismálanefnd fyrir því að aðildarumsókn fari í þjóðaratkvæði
Meirihluti er fyrir því í utanríkismálanefnd Alþingis að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort halda eigi aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, lagði fram bókun á fundi nefndarinnar í morgun þar sem hún fer fram á að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið fyrir lok þessa árs.
Segir Guðfríður Lilja að aðildarferlið hafi dregist á langinn og fyrirsjáanlegt er að það dragist enn frekar. Sagði hún ferlið bæði áhættu- og kostnaðarsamt, valda sundurlyndi og draga athygli frá öðrum valkostum í utanríkismálum. Því sé mikilvægt að þjóðin komi sem fyrst að málum.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að með bókun Guðfríðar Lilju hafi þau tíðindi gerst að í fyrsta sinn væru nú meirihluti fyrir því að þjóðin fái tækifæri til að greiða atkvæði um það hvort hún vilji halda aðildarferlinu áfram. Sagði Ragnheiður Elín að það sé einsdæmi að ályktað sé með þessum hætti og hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins óskað eftir því að utanríkisráðherra verði boðaður á fund nefndarinnar.
Þór Saari, Hreyfingunni, sagði að það heimskulegasta sem þjóðin gæti gert væri að draga umsóknina að ESB til baka. Slíkt myndi eingöngu kalla á áratuga deilur í þjóðfélaginu og er bókun Guðfríðar Lilju þess efnis „örvæntingarfull tilraun“ til að endurheimta bakland sem nú er horfið, þó vegna allt annarra mála en aðildarumsóknar að ESB.
Þingmenn Samfylkingarinnar, Mörður Árnason og Magnús Orri Schram, sögðu afstöðu Guðfríðar Lilju ekki nýja af nálinni og því séu þetta minni tíðindi en þingmenn Sjálfstæðisflokks vilja af láta. Þeir taka hins vegar undir með Guðfríði Lilju að þjóðin fái að segja sitt álit, en þó ekki fyrr en aðildarsamningur liggur fyrir enda lítið vit í að kjósa um samning sem enginn veit hvernig kemur til með að líta út.
Vigdís Hauksdóttir, Framsóknarflokki, sagði að með bókun Guðfríðar Lilju sé þingið laust úr gíslingu ríkisstjórnarflokkanna í ESB málinu. Hún lýsti hins vegar yfir vonbrigðum með afstöðu Þórs Saari. Sagði hún að nú væri loks tækifæri til að fella stjórnina, en þá stigi Þór fram og segist munu styðja hana.
Þetta er hræsni, frú forseti.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is