Þriðjudagur 22.05.2012 - 07:45 - Ummæli ()

Samstaða ekki í viðræðum við ríkisstjórnina – Vill hana burt hið fyrsta

Lilja Mósesdóttir, formaður Samstöðu.

Stjórn Samstöðu krefst þess að ríkisstjórnin víki og boðað verði til kosninga hið fyrsta. Flokkurinn telur að tilraunir til að semja um einstök mál við ríkisstjórnina framlengi aðeins líf hennar og lengi biðina eftir raunhæfum aðgerðum.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem stjórn Samstöðu sendir frá sér. Formaður Samstöðu er jafnframt eini þingmaður flokksins, Lilja Mósesdóttir.

Í yfirlýsingu segir að þess sé krafist að ríkisstjórnin, sem njóti stuðnings minnihluta kjósenda, víki hið fyrsta og boðað verði til kosninga. Er það sérstaklega tekið fram að fulltrúar flokksins eigi ekki í viðræðum við ríkisstjórnina um stuðning í skiptum fyrir framgang ákveðinna mála.

Stjórn Samstöðu telur fullreynt að fá hina svokölluðu norrænu velferðarstjórn til að efna kosningaloforðin og taka á skuldavanda heimilanna, fyrirtækja og þjóðarbúsins með hagsmuni almennings að leiðarljósi. Endalausar tilraunir til að semja um einstök mál við ríkisstjórnina framlengja aðeins líf hennar og lengja biðina eftir raunhæfum aðgerðum,

segir í tilkynningu stjórnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is