Viðskipti Miðvikudagur 23.05.2012 - 08:04 - Ummæli ()

Fyrrum framkvæmdastjóri Glitnis ákærður fyrir umfangsmikil innherjaviðskipti

Fyrrum framkvæmdastjóri fjárstýringar Glitnis, Friðfinnur Ragnar Sigurðsson, hefur verið ákærður fyririnnherjasvik. Hann er grunaður um að hafa selt hlutabréf sín í bankanum, vitandi um slæma stöðu hans í aðdraganda bankahrunsins.

Það er sérstakur saksóknari sem gefur út ákæruna, en málið verður þingfest í byrjun júní. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins, sem greinir frá málinu, námu viðskiptin á annan tug milljóna króna.

Friðfinnur var einn  þeirra starfsmanna sem fengu há lán hjá Glitni nokkrum mánuðum fyrir fall bankans. Einkahlutafélag hans, Laugalind, fékk 171 milljón að láni og varð gjaldþrota í fyrrasumar. Engar eignir fengust upp í þrjú hundruð milljóna skuldir.

Þetta er annað innherjasvikamálið sem embætti sérstaks saksóknara höfðar frá bankahruni. Hitt var á hendur Baldri Guðlaugssyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra, sem seldi hlutabréf sín í Landsbankanum fyrir 194 milljónir króna í september 2008. Baldur fékk tveggja ára fangelsisdóm fyrir brotið.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is