Miðvikudagur 23.05.2012 - 14:10 - Ummæli ()

Vill að Sjálfstæðisflokkurinn bjóði fram tvo lista í næstu kosningum – D og DD

Séra Halldór Gunnarsson. Mynd/Flickr-Kirkjan

Þeirri hugmynd hefur verið varpað fram að Sjálfstæðisflokkurinn bjóði fram tvo lista í næstu Alþingiskosningum. Á annan listann myndu raðast þingmenn flokksins, en nýir frambjóðendur á hinn listann.

Það er séra Halldór Gunnarsson sem varpar þessari hygmynd fram í grein sem skrifar í Morgunblaðið í dag. Halldór hefur lengi verið virkur innan Sjálfstæðisflokksins og vakti til að mynda mikla athygli þegar hann lagði fram ályktun á landsfundi flokksins þar sem skorað var á forystu og þingmenn flokksins að íhuga stöðu sína með tilliti til fylgis flokksins, og að þeir sem þáðu háa styrki ættu að sýna ábyrgð með því að segja af sér. Ályktunin var samþykkt en henni var ekki fylgt eftir.

Í greininni segir séra Halldór að í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu sem stjórnmálin eru í, þar sem vantraust í garð þingmanna er mikið, verði sjálfstæðismenn að skoða allar leiðir til að ná til kjósenda í komandi kosningum.

Það þarf að gerast án þess uppgjörs, sem galopin prófkjör hafa áður reynst leiða af sér, þar sem jafnvel flokksbundnir aðilar annarra flokka taka þátt og þar sem frambjóðendur berjast með fjármagni stuðningsaðila, sem síðar gera sínar kröfur, væntanlega beint eða óbeint um endurgjald,

segir Halldór sem telur að flokkurinn muni aldrei njóta stefnu sinnar og möguleika á að koma að stjórnun landsins með nýjum þingmönnum með fyrri aðferðum í kosningaundirbúningi.

Halldór leggur því til að sjálfstæðisfélögin ræði þann möguleika að óska eftir heimild miðstjórnar til að bjóða fram tvo lista í næstu alþingiskosningum – D og DD.

Þeir alþingismenn sem njóta til þess stuðnings, séu valdir á D-listann, en nýir frambjóðendur á DD-listann og ef ekki næðist sátt um framboð þannig væri heimilað að DDD listi kæmi fram. Þannig verði við þessar sérstöku aðstæður, sem nú ríkja í þjóðfélaginu, ekki farið út í opin prófkjör, heldur verði öllum sjálfstæðismönnum gefinn kostur á að kjósa í alþingiskosningum um tvo eða fleiri lista og þannig nýtist öll atkvæði flokknum,

segir Halldór og útskýrir frekar:

Frambjóðendur listanna hafi eðlilega stefnumörkun landsfundarins og grunngildi flokksins að tala út frá, en síðan væru það kjósendur, sem fengju tækifæri til að láta í ljós hug sinn með atkvæði sínu.

Þannig og aðeins þannig gæti uppgjör farið fram til að byggja á sátt innan flokksins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is