Vill sérfræðinga til Neytendastofu til að berjast gegn kukli – „Dreifing blekkinga og gervifræða óstöðvandi“
„Það þarf einfaldlega raunvísindafólk í Neytendastofu til að segja til um hvað er heiðarleg heilsuvara eða heilsutengd þjónusta og hvað blekking,“ segir Svanur Sigurbjörnsson, sérfræðilæknir. Hann vill meina að „blekking og gervifræði“ séu orðin óstöðvandi á tímum internetsins.
Svanur, sem heldur úti reglulegum skrifum á Eyjunni, skrifar grein á raun.is þar sem hann gerir „kukl og gervifræði“ að umræðuefni.
Svanur segir að samhliða örum þjóðfélagsbreytingum undanfarin ár hafi sprottið upp talsvert af fólki sem aðhyllist ýmis gervifræði og kukl. Opnun þjóðfélaga, aukið einstaklingsfrelsi og blómstrun internetsins geri það að verkum að „dreifing blekkinga og gervifræða er óstöðvandi“.
Fólk sem áður komst ekkert áleiðis með furðulegar og rangt hugsaðar útskýringar á lífheiminum og einhverjar ímyndaðar lausnir á heilsufarsvanda fólks, getur nú markaðssett alla fantasíuna í gegnum netið. Úrelt gervifræði úr forneskju eru tekin upp að nýju og skellt í aðlaðandi búning, kennd og seld um allan heim.
Þemu þessa kukls, segir Svanur, eru fyrirbæri eins og „orkubrautir, orkusvið, árur, heilunarmáttur, minni vatns, líkt lækni líkt“ og svo alls kyns rangtúlkanir á þekktum fræðigreinum og fyrirbærum í lífheiminum. Nefnir Svanur sem dæmi blóðflokkamataræði, pH-stillt fæði og DNA-heilun.
Enn fremur lúta önnur þemu að því að eitthvað rangt sé við læknavísindin. Svo sem að bólusetningar séu samsæri til að plokka peninga af fólki og því séu þau siðferðislega neikvæð og „nánast illvilja gagnvart fólki.“
Gefin er sú mynd að hið stóra kerfi sem í eðli sínu fjandsamlegt en hinir litlu heilsugrúskarar séu vinsamlegir og búi yfir þekkingu sem fulltrúar kerfisins hafi fordóma gagnvart.
Fyrir ýmsa er þessi pakki hugsunarháttar afar aðlaðandi og hann virðist blása í þetta fólk þá tilfinningu að það sé einhvers máttugt. Það telur sér trú um að það sé að gera gagn. Það geti þrátt fyrir litla menntun og grúsk í fræði sem kerfið hafnaði, gert heilmikið og uppskorið virðingu og lifibrauð af þessari iðkun. Samanlegðaráhrif þess að gervifræðin eru upphafin um leið og vísindin eru gerð tortryggileg eru mikil og skemmandi, því að þau afvegaleiða fólk og menga þekkingarheiminn.
Svanur bendir á að lengi vel hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk ekki skipt sér af þessari þróun. Það breyttist hins vegar fyrir um sjö árum þegar „talsmenn gervifræða“ fóru fram á að fá opinbera viðurkenningu á starfi sínu. Úr varð að sett voru lög um græðara.
Þetta virtist vera ábyrg leið til að mæta uppkomu þessara gervifræða og kukls en í raun er þetta bara lagarammi utan um fantasíu sem gengur ekki upp. Svona nánast eins og að ríkið myndi viðurkenna ímyndunarheim tölvuleiks sem raunverulegt umhverfi til að vinna í.
Svanur segir að það sé eðli þessara „kuklgreina“ að vera utan utan kerfis því fólkið sem býr til fantasíurnar finnur sér ekki farveg innan um gagnrýni umhverfi, því það vill ekki láta hefta sig á nokkurn hátt. Margir kenna sig ekki við neinar skipulagðar greinar græðara, heldur auglýsir „kukl sitt“ á óháðum vefsíðum, algjörlega óbundið að siðareglum.
Svanur tekur dæmi af tveimur íslenskum karlmönnum sem segjast geta haft áhrif til batnaðar á „barnagigt“ í gegnum svokallað „lífeindaljós“.
Þetta auglýsa þeir blákalt og segjast hafa iðkað í 3 ár. Það er ekkert til sem heitir “barnagigt” en það eru til alvarlegir gigtsjúkdómar sem geta herjað á börn og þessir menn hafa alls enga kunnáttu né lagalegt leyfi til að meðhöndla þá sjúkdóma.
Svanur tekur fram að það sé ekki allt innan óhefðbundna geirans sem flokkast undir kukl, en því miður mjög margt. Aftur á móti verður ekki nema allra grófasta kuklið numið burt með lögum og því þarf að beita neytendalöggjöfinni.
Sé neytendalöggjöfin notuð betur má taka á alls kyns falsi því að það er í raun svikin vara eða þjónusta. Það þarf einfaldlega raunvísindafólk í Neytendastofu til að segja til um hvað er heiðarleg heilsuvara eða heilsutengd þjónusta og hvað blekking (vísvitandi eða ekki). Þetta er ekki sérlega flókið mál, ekki frekar en að benda á galla í raftæki eða skemmd matvæli. Sumar greinar eru á gráu svæði (nálastungur, jurtalækningar o.fl.) og þær mega njóta vafans en það er yfirþyrmandi mikið af hreinu kukli í gangi sem einfalt er að greina sem slíkt með sterkum rökum. Fólkið í landinu á skilið neytendavernd að þessu tagi og hún er bæði mikilvæg og nauðsynleg. Allt sem þarf er pólitískan vilja og aukið fjármagn til Neytendastofu til að ráða sérfræðinga og sinna þessu af krafti.
Einnig segir Svanur að skoða þurfi hvort ekki sé best að afnema lögin um græðara því þau séu að líkindum gagnslaus og ýta undir að ungt fólk „láti blekkjast og fari í nám í gervifræðum og kukli“.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is