Viðskipti Miðvikudagur 23.05.2012 - 08:55 - Ummæli ()

Vinum Facebook á Wall Street fækkar – Fjárfestar hafa tapað stórfé

Mynd/Getty images

Hlutabréfaverð í Facebook hefur fallið um 18 prósent síðan fyrirtækið var skráð á markað á föstudaginn. Fjárfestar á Wall Street, sem sumir hverjir hafa tapað háum fjárhæðum, eru æfir og telja að þeir hafi verið blekktir í aðdraganda útboðsins.

Virði Facebook hefur farið úr 104 milljörðum dollara niður í 85 milljarða á þeim þremur dögum sem opið hefur verið með viðskipti í fyrirtækinu. Hluturinn var seldur á 38 dollara í upphafi, en stóð í 31 dollar við lokun markaða í gær. Mikið hafði verið gert úr hlutabréfaútboðinu og þess beðið í langan tíma. Það virðist hafa misheppnast algjörlega.

Í skoðun er hvort almennir fjárfestar hafi verið blekktir í aðdraganda útboðsins, þar sem spár um framtíðarhagnað voru færðar niður nokkrum dögum fyrir útboðið. Tilkynning þess efnis fór afar lágt og vilja sumir meina að þessum upplýsingum hafi verið haldið leyndum frá almennum fjárfestum.

Mary Schapiro, yfirmaður bandaríska fjármálaeftirlitsins, SEC, segir eftirlitsaðila ætla að skoða ákveðna þætti útboðsins.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is