Yfirlýsing Obamas hafði áhrif: Aldrei fleiri hafa stutt hjónabönd samkynhneigðra

Stuðningur Baracks Obama við hjónabönd samkynhneigðra virðist hafa breytt viðhorfi fjölmargra Bandaríkjamanna.
Stuðningur við hjónabönd samkynhneigðra hefur aldrei mælst meiri í Bandaríkjunum en nú. Ástæðan er talin vera söguleg yfirlýsing Baracks Obama, Bandaríkjaforseta, þar sem hann lýsti yfir stuðningi við málstaðinn.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem gert var fyrir Washington Post og ABC segja 53 prósent Bandaríkjamanna að hjónabönd samkynhneigðra eigi að vera lögleg. Fyrir einungis sex árum voru 36 prósent þessarar skoðunar.
Að sama skapi telja 39 prósent aðspurðra að hjónaband samkynhneigðra eigi að vera ólöglegt. Hlutfallið hefur aldrei verið lægra.
Tvær vikur eru síðan Barack Obama lýsti því opinberlega yfir að hann styddi hjónabönd samkynhneigðra. Ákvörðunin var umdeild í Bandaríkjunum, en kannanir sýna þó að hún hafi engin áhrif á ákvörðun kjósenda í forsetakosningunum í nóvember því sem fyrr verða það efnahagsmálin sem skipta kjósendur höfuðmáli.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is