Herdís: Ég hefði vísað Icesave til þjóðarinnar – Valdafíkn mönnum í blóð borin
Herdís Þorgeirsdóttir, forsetaframbjóðandi, segir að hún hefði vísað Icesave málinu í hendur þjóðarinnar, hefði hún staðið frammi fyrir sömu ákvörðun og Ólafur Ragnar Grímsson gerði á sínum tíma. Í það minnsta fyrra Icesave málinu.
Herdís svaraði spurningum lesenda dv.is á Beinni línu. Þar var hún meðal annars spurð að því hvað hún hafi fram yfir aðra frambjóðendur.
Ég er hvorki bundin stjórnmálaöflum né peningaöflum; ég er hef mikinn skilning á stjórnskipun, mannréttindum og lýðræði; ég hef öðlast talsverða lífsreynslu, rekið eigið fyrirtæki og fleira.
Aðspurð út í viðhorf hennar til málskotsréttar forseta svarar Herdís því til að hún myndi nota þær valdheimildir í umdeildum og mikilvægum málum, þar sem ákvörðun er jafnvel óafturkræf og „skapast hefur gjá milli þings og þjóðar“.
Ég hefði beitt málskotsréttinum í Icesave – eins og hann gerði í fyrra skiptið – jafnvel í síðara skiptið – það á að lesa stjórnarskrána út frá grundvallarreglunni um lýðræði og sjálfsákvörðunarrétt fólksins.
Herdís telur að átta ár sé hæfilegur tími fyrir bæði forseta – og þingmenn – á valdastóli.
Vald spillir – valdafíkn er mönnum í blóð borin og því verður að stemma stig við langri valdasetu. Átta ár eru hæfilegur tími.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
