Viðskipti Fimmtudagur 24.05.2012 - 19:05 - Ummæli ()

Landsbankinn hagræðir: Útibúum lokað og starfsmönnum fækkar um 50

29 starfsmönnum Landsbanka Íslands hefur verið sagt upp störfum og 21 til viðbótar hættir störfum í umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum innan bankans. Þá verður útibúum víða um land lokað. Aðgerðirnar spara 400 milljónir króna.

Umtalverðar breytingar verða á starfsemi Landsbankans á Vestfjörðum. Afgreiðslum bankans á Flateyri og í Súðavík verður lokað og færist þjónusta bankans á Ísafjörð og Þingeyri. Afgreiðslu á Bíldudal verður sömuleiðis lokað.

Afgreiðslunni á Króksfjarðarnesi verður lokað en stefnt verður að þjónustuheimsóknum á Reykhóla.

Afgreiðsla Landsbankans í Grundarfirði verður sameinuð útibúinu í Snæfellsbæ.

Á Austurlandi verður útibúum bankans á Eskifirði og Fáskrúðsfirði lokað og þau sameinuð útibúinu á Reyðarfirði.

Í Reykjavík verður starfsemi útibúsins í Árbæ sameinuð útibúinu í Grafarholti við Vínlandsleið, en áfram verður starfrækt afgreiðsla í Árbænum. Þá voru gerðar skipulagsbreytingar í höfuðstöðvum bankans.

Öll útibúin loka 31. maí.  Í tilkynningu Landsbankans segir að þessar aðgerðir spari 400 milljónir króna. 29 einstaklingum verður sagt upp og 15 starfsmönnum verður boðinn starfslokasamningur vegna aldurs. Alls fækkar starfsmönnum bankans um 50 við breytingarnar, en aðrir höfðu áður sagt upp störfum.

Á síðasta ári bættust um 200 starfsmenn við þegar bankinn tók yfir rekstur Spkef, SP – Fjármögnunar og Avant og fyrirséð var að einhver breyting yrði á starfsmannahaldi í kjölfarið.

Meira en helmingur af rekstrarkostnaði fjármálafyrirtækja eru launakostnaður. Hagræðingu verður því tæplega náð fram án þess að henni fylgi fækkun starfsmanna. Landsbankinn hefur sett sér skýr markmið um lækkun rekstrarkostnaðar sem hlutfall af tekjum og þessi aðgerð er þáttur í að uppfylla þau.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is