Viðskipti Föstudagur 25.05.2012 - 15:43 - Ummæli ()

Fjárfestingaáætlun ríkisstjórnar óraunhæf – Óútséð með fjármögnun

Frá blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar þar sem fjárfestingaáætlunin var kynnt. Mynd/Pressphotos.biz

Greiningardeild Arion banka telur ekki ástæðu til að uppfæra hagvaxtarspá sína vegna fjárfestingaáætlunar ríkisstjórnarinnar sem kynnt var í síðustu viku. Of mikil óvissa ríkir um helstu þætti fjármögnunarinnar, að mati deildarinnar.

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku áætlun sem gerir ráð fyrir fjárfestingu upp á 88 milljarða króna fram til ársins 2015. Gangi áætlunin eftur munu skapast um 11 þúsund ný störf. Fjármagna á áætlunina meðal annars með 17 milljörðum af veiðigjaldi og 22 milljörðum af arði og eignasölu hluta ríkisins í bönkunum.

Greiningardeild Arionbanka fer yfir áætlunina í Markaðspunktum sínum í dag og kemst að þeirri niðurstöðu að óvíst sé að um raunsæja áætlun sé að ræða, einkum í ljósi þess að fjármögnun hennar er ekki í hendi.

Gangi áætlunin eftir mun áætlunin hafa töluverð áhrif á fjárfestingu á vegum hins opinbera og fjármunamyndun í landinu almennt, að mati greiningadeildarinnar. Þannig gæti aukning í fjármunamyndun milli áranna 2012 og 2013 orðið um 26 prósent, í stað 15 prósent eins og fyrirliggjandi spá bankans gerir ráð fyrir.

Slík aukning í fjárfestingu ætti að draga úr atvinnuleysi og auka þar með einkaneyslu. Allt ýtir þetta undir hagvöxtinn en á móti kemur aukinn innflutningur sökum innfluttra aðfanga.

Þrátt fyrir þetta telur greiningadeildin ekki tilefni til að uppfæra hagvaxtarspá sína, fyrst og fremst vegna þess að óvissa ríkir um hvort áætlanir um fjármögnun haldi. Þar munar mestu um að Alþingi hefur enn ekki samþykkt frumvarp um veiðigjald og alls óvíst er hvort það nái í gegn, miðað við hversu umdeilt málið er.

Þá er óvíst hver afraksturinn verður af sölu á hlut ríkisins í bönkunum, meðal annars vegna gjaldeyrishafta, óvissu um framtíðarskipan fjármálakerfisins og kvótakerfisins.

Hér er vert að benda á að Landsbankinn hefur lýst því yfir að ef fiskveiðistjórnunarfrumvörpin verða samþykkt í núverandi mynd hefði það talsverð áhrif á eiginfjárstöðu bankans. Þetta hefur að sjálfsögðu bein áhrif á verðmæti hlutar ríkisins í Landsbankanum og því hversu mikið fæst fyrir hlutinn ef af sölu hlutarins yrði. Einnig munu sömu atriði draga úr getu bankanna til arðgreiðslna.

Með öðrum orðum, önnur fjármögnunarleið ríkisstjórnarinnar verður til þess að ólíklegra er að hin fjármögnunarleiðin standist.

Enn fremur bendir Arion banki á a ríkið tók lán fyrir eignarhlut sínum í Landsbankanum. Ef andvirði þess hlutar er ráðstafað í þær aðgerðir sem nefndar eru í áætluninni mun skuldastaða ríkissjóðs versna sem nemur rúmlega 1 prósent af landsframleiðslu.

Þá er ljóst að ef af aukinni gjaldtöku verður í sjávarútvegi mun fjárfesting í þeim geira minnka umtalsvert og þannig verður fjárfesting og neysla hins opinbera í gegnum fjárfestingaáætlunina í raun ekki hrein viðbót við landsframleiðslu þar sem einungis er verið að auka hlutdeild ríkissjóðs í landsframleiðslunni á kostnað einkageirans. Af ofangreindum ástæðum teljum við ekki tímabært að uppfæra hagvaxtarspá okkar miðað við fjárfestingaáætlun ríkisstjórnarinnar.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is