Föstudagur 25.05.2012 - 11:52 - Ummæli ()

Geir H. Haarde er kominn með vinnu – Ráðinn á lögfræðistofu

Geir H. Haarde ásamt eiginkonu sinni Ingu Jónu Þórðardóttur. Mynd/Pressphotos.biz

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.

Geir var sem kunnugt er sakfelldur fyrir einn ákærulið af fjórum í Landsdómsmálinu í síðasta mánuði. Hann hefur ekkert starfað síðan hann lét af embætti forsætisráðherra snemma árs 2009.

Það er mikill fengur að því fyrir okkur að fá Geir til liðs við OPUS lögmenn. Ég er viss um að reynsla hans sem forsætis-, utanríkis- og fjármálaráðherra, menntun hans og þekking, sem og víðtæk reynsla af alþjóðlegum samskiptum muni koma okkar fyrirtæki og viðskiptavinum þess að góðu gagni.

segir Erlendur Þór Gunnarsson framkvæmdastjóri OPUS lögmanna í tilkynningu.

OPUS lögmenn hófu starfsemi árið 2006 og hjá stofunni starfa nú fimmtán manns, þar af tólf lögmenn. OPUS lögmenn sinna alhliða lögfræðiþjónustu fyrir einstaklinga jafnt sem fyrirtæki og stofnanir. Á síðustu misserum hafa umsvif vegna verkefna fyrir erlenda viðskiptavini aukist mjög.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is