Föstudagur 25.05.2012 - 17:40 - Ummæli ()

Misvísandi kannanir: Þóra og Ólafur Ragnar hnífjöfn í könnun MMR

Þóra Arnórsdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson mælast hnífjöfn í nýrri könnun MMR á fylgi forsetaframbjóðenda. Aðrir frambjóðendur sækja lítillega á.

Könnun Fréttablaðsins í morgun sýndi verulega fylgisaukningu Ólafs Ragnars á kostnað Þóru. Könnun MMR sýnir hins vegar að þau eru hnífjöfn. Í síðustu könnun MMR var Þóra með 2 prósentustigaforskot á Ólaf Ragnar. Bæði mælast þau með 41,2 prósentustiga fylgi.

Ari Trausti Guðmundsson bætir við sig tæpu prósentustigi, fer úr 8,9 prósent upp í 9,7 prósent. Andrea Ólafsdóttir bætir við sig 0,4 prósentustigum og mælist með 3 prósenta fylgi. Þá tvöfaldar Herdís Þorgeirsdóttir fylgi sitt og rúmlega það. Hún mælist nú með 3,4 prósenta fylgi.

Ástþór Magnússon er með 1,3 prósent og Hannes Bjarnason 0,2.

Einnig var spurt út í afstöðu kjósenda eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. 52,5 prósent framsóknarmanna og 58,7prósent sjálfstæðismanna sögðust kjósa Ólaf Ragnar en 71,0 prósent samfylkingarfólks og 69,6 prósent Vinstri-grænna sagðist vilja kjósa Þóru.

Þá voru 63,3 prósent þeirra sem sögðust styðja ríkisstjórnina sem jafnframt sögðust kjósa Þóru. Á móti voru 53,3 prósent þeirra sem sögðust andvígir ríkisstjórninni sem sögðust vilja kjósa Ólaf Ragnar.

933 tóku þátt í könnuninni og tóku 83,8 prósent afstöðu til spurningarinnar. Rúmlega 11 prósent þátttakenda hafa ekki gert upp hug sinn á meðan 3,2 prósent segjast ætla að skila auðu eða mæta ekki á kjörstað.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is