Föstudagur 25.05.2012 - 08:13 - Ummæli ()

Ólafur Ragnar í stórsókn – Stingur Þóru af í nýrri könnun

Ólafur Ragnar Grímsson hefur tekið afgerandi forystu í kapphlaupinu um forsetaembætttið samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Hann fengi ríflega helming atkvæða.

Ef litið er til þeirra sem tóku afstöðu ætla 53,9 prósent kjósa Ólaf Ragnar. Fylgi Þóru Arnórsdóttur dalar hins vegar mikið því hún fengi stuðning 35,4 prósent kjósenda. Ólafur og Þóra voru nánst hnífjöfn í síðustu könnun með 46 prósent atkvæða hvort. Sú könnun var gerð áður en Ólafur hóf kosningabaráttu sína.

Aðrir frambjóðendur eiga á brattann að sækja. 5,3 prósent segjast ætla að kjósa Ara Trausta Guðmundsson, 2,7 Andreu Ólafsdóttur, 1,3 prósent Herdísi Þorgeirsdóttur og 0,9 prósent Ástþór Magnússon. Enginn sagðist ætla að styðja Hannes Bjarnason.

Hlutfall óákveðinna minnkar mikið milli kannanna, fer úr 22,1 prósent niður í 14, prósent.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is