Viðskipti Sunnudagur 27.05.2012 - 13:24 - Ummæli ()

Sigurður G. Guðjónsson hrl. spyr: Hver ætlar að bera ábyrgð á stofnun ársins?

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður.

Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður spyr hver ætli að axla ábyrgð á stofnun ársins, ef í ljós komi að tveir lögreglumenn hjá embætti sérstaks saksóknara hafi gerst sekir um lögbrot í starfi, eins og flest bendi til,  innanríkisráðherra eða sérstakur saksóknari?

Í nýjum pistli á Pressunni í dag fjallar Sigurður um fréttir sem hafa borist af ákærum á hendur tveimur lögreglumönnum sem munu haft selt skiptastjóra og jafnvel fleiri aðilum viðkvæmar trúnaðarupplýsingar úr lögreglurannsóknum og þegið fyrir það gífurlegar fjárhæðir, jafnvel milljónatugi.

Sigurður skrifar meðal annars:

Embætti sérstaks saksóknara  getur ráðið og ráðið starfsfólk  og virðist í raun orðið einhvers konar afdrep fyrir nýliða úr ýmsum greinum háskólanáms. Stofnunin tekur alltaf við, ólíkt hafinu. Þessum nýliðum er svo skipað í lið með nokkrum eldri starfsmönnum réttarvörslunnar. Liðin  keppa svo innbyrðis um  að bera sakir á sem flesta úr fjármálgeiranum.  Þegar mikið liggur við  er keppni þessari  bæði sjónvarpað og útvarpað, eins og um raunverulegan íþróttaviðburð sé að ræða. Þá skiptir engu sekt eða sakleysi, enda ekki verið að leita að hinu sanna, heldur því sem best fer í stjórnvöld sem skaffa peningana í partíið í húsnæði sérstaks saksóknara við Skúlagötu. Þeir sem telja sig vanhaldna launalega hjá stofnun ársins skaffa sér bara meira með því að selja gögn sem þeir hafa komist yfir í  vinnu sinni fyrir stofnunina. Er nema von að starfsfólkið sé ánægt með stofnunina sína. Það á hana.

Og Sigurður bætir við:

Hinum almenna ríkisstarfsmanni þætti ekki slæmt að geta sent reikning út í bæ að fjárhæð kr. 22.887.434 fyrir aukavinnu. Það gátu tveir stafsmenn stofnunar ársins 29. nóvember 2011. Reikningurinn var fyrir vinnu á tímabilinu 24. september til 17. nóvember  2011.  Sennilega hafa þessir ágætu ríkisstarfsmenn, annar afbrotafræðingur og hinn lögfræðingur, verið búnir að sannfæra sjálfa sig og yfirmenn sína um að þetta háttarlag þeirra væri í lagi.  Stæðist bæði siðareglur og lög.

Og lögmaðurinn spyr í pistli sínum:

Hver ætlar að axla ábyrgð á stofnun ársins, ef um brot í starfi var að ræða, eins og flest bendir til að hafi verið þegar bara er horft til 136. gr. almennra hegningarlaga,  innanríkisráðherra eða sérstakur saksóknari ?

Svar óskast.

Pressupennapistill Sigurðar G. Guðjónssonar í heild sinni.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is