Þriðjudagur 29.05.2012 - 13:30 - Ummæli ()

Fátækt meðal barna minnst á Íslandi – Börn atvinnulausra berskjaldaðasti hópurinn

Fátækt meðal barna er minnst á Íslandi.

Ný skýrsla UNICEF um barnafátækt í Evrópu sýnir að fátækt meðal barna er minnst á Íslandi. Börn foreldra með litla menntun og börn innflytjenda eru fjórum sinnum líklegri en önnur til að líða skort.

Skýrslan, sem ber heitið Report Card 10: Measuring Child Poverty, kom út í dag. Í henni er mæld barnafátækt í velmegandi ríkjum með svokallaðri „skortvísitölu barna“.

Samkvæmt vísitölunni líður barn efnislegan skort ef það hefur ekki aðgang að tveimur eða fleiri atriðum af fjórtán sem álitin eru segja til um lífsgæði í efnameiri ríkjum heims.

Þar má nefna þrjár máltíðir á dag, a.m.k. tvö pör af skóm, rými og næði til að vinna heimavinnu, möguleika á tómstundaiðkun, efni sem nægja til að halda afmælisveislu fyrir barnið og burði til þátttöku í ferðalögum og viðburðum á vegum skóla.

Stuðst er við nýjustu tölur sem aðgengilegar eru en þær eru frá árinu 2009.

Skortvísitala íslenskra barna er samkvæmt skýrslunni 0,9% sem þýðir að innan við 1% íslenskra barna býr við efnislegan skort. Það er lægsta hlutfall allra þeirra 29 ríkja sem mæld voru. Mikill munur er þó innan ákveðinna hópa í íslensku samfélagi.

Börn foreldra með litla menntun og börn innflytjenda eru til dæmis fjórum sinnum líklegri en önnur til að líða skort samkvæmt mælingunni og börn einstæðra foreldra fimm sinnum líklegri.

Berskjaldaðasti hópurinn er börn atvinnulausra. Tæp 18% barna sem eiga foreldra sem báðir eru atvinnulausir líða efnislegan skort. Þau eru því tuttugufalt líklegri en önnur börn á Íslandi til að vera í þeirri stöðu.

Af þeim ríkjum sem mæld voru er hæsta hlutfall barna sem líða skort að finna í Rúmeníu (72,6%).  Næst á eftir eru Búlgaría (56,6%) og Ungverjaland (31,9%). Af öðrum ríkjum má sem dæmi nefna Pólland (20,9%), Ítalíu (13,3%), Þýskaland (8,8%) og Lúxembúrg (4,4%). Norræn börn eru síst líkleg til að líða efnislegan skort. Hlutfallið er undir 3% á öllum Norðurlöndunum en hæst í Danmörku (2,6%).

Skýrslan sýnir hversu mikilvægt það er að mæla barnafátækt – bæði þegar vel árar en ekki síst þegar kreppir að eins og nú. Börn eru viðkvæmasti þjóðfélagshópurinn og umfang og eðli barnafátæktar er skýr endurspeglun á aðstæðum í samfélaginu í heild. Við þurfum nýrri tölur og reglulegri mælingar, bæði á hlutfallslegri fátækt og skorti á lífsgæðum,

segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Hér að neðan má sjá töflu yfir skortvísitölu barna. Nánari upplýsingar má finna á vef UNICEF.

Heimild/UNICEF


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is