Þriðjudagur 29.05.2012 - 10:45 - Ummæli ()

Venus gengur fyrir sólu – Einstakur viðburður og aðeins á Íslandi

Reykjavík er eina borgin í heiminum þar sem hægt er að fylgjast með þvergöngunni frá upphafi til enda. Mynd/stjornufraedi.is

Íslendingar geta orðið vitni að einstökum stjarnfræðilegum viðburði þegar Venus gengur fyrir sólu að kvöldi 5. júní. Reykjavík er eina borgin í heiminum þar sem sólin sest og rís aftur á meðan þvergangan stendur yfir.

Þvergangan hefst klukkan 22:04 og stendur yfir í sex klukkustundir. Það er eins gott að grípa tækifærið því 235 ár eru þangað til þessi sjaldgæfi atburður sést aftur, frá upphafi til enda, frá Íslandi.

Félagsmenn Stjörnuskoðunarfélagsins víða um land ætla að sjálfsögðu að fylgjast með þvergöngunni og bjóða þeir áhugasömum að ganga í lið með sér. Allar nánari upplýsingar er hægt að nálgast á stjörnufræði.is.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is