Þorvaldur ekki huglaus enda hræðist hann ekki neitt – Ég klippti út klausuna, segir Illugi
„Hér get ég upplýst að Þorvaldur sjálfur átti engan þátt í að umrædd klausa var ekki í hinni íslensku útgáfu greinarinnar í Skírkini,“ segir Illugi Jökulsson sem þýddi grein Þorvalds Gylfasonar yfir á íslensku. Jóns Steinar Gunnlaugssson, hæstaréttardómari, hefur stefnt Þorvaldi vegna greinarinnar.
Eins og Eyjan greindi frá í morgun ætlar Jón Steinar að höfða meiðyrðamál gegn Þorvaldi og krefja hann fyllstu bóta og refsingar. Umrædd grein var birt í ritröð Háskólans í München í Þýskalandi.
Greinin var síðar birt í Skírni, en sú færsla sem stefnt er fyrir birtist ekki í íslensku útgáfu greinarinnar. Sakar Jón Steinar hagfræðiprófessorinn um hugleysi, í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið.
Hann birtir sem sagt opinberlega ærumeiðingar en heldur að sá sem fyrir verður muni líklega ekki sjá þær eða að minnsta kosti láta framferðið óátalið þar sem ummælin eru ekki birt á hefðbundnum vettvangi fyrir umræður um þjóðfélagsmál á Íslandi. Þessi höfundur verður líklega seint sakaður um hugrekki.
Illugi Jökulsson skrifar grein á Eyjuna þar sem hann útskýrir hvers vegna umrædd klausa rataði ekki í íslenska útgáfu greinarinnar. Segir Illugi að Þorvaldur hafi hvergi komið þar nærri.
Þorvaldur skrifaði greinina upphaflega á ensku og var Illugi ráðinn til þess að þýða hana á íslensku til birtingar í Skírni. Illugi segir að strax frá upphafi hafi verið ljóst að stytta þyrfti greinina um „hartnær helming“ svo hún passaði Skírni.
Það var partur af mínu þýðingarverki og ég gerði það nær algjörlega án samráðs við Þorvald.
Ég bar undir hann fáeinar styttinganna, og hann samþykkti þær allar umyrðalaust – nema eina, sem vel að merkja snerist ekki um þá klausu sem hér um ræðir.
Klausuna sem Jóni Steinari er uppsigað við klippti ég út umhugsunarlítið, og án minnsta samráðs við Þorvald – en ekki vegna þess að hún innihéldi einhver viðkvæm mál.
Heldur einfaldlega af því hún var hluti af kafla sem snerist um framgang stjórnlagaþingskosninganna á Íslandi,
segir Illugi og bætir við að lokum.
Ástæðan er ekki hugleysi Þorvaldar, enda veit ég ekki til að sá maður sé hræddur við neitt, heldur einfaldlega mín ritstjórnarvinna sem hann hafði í þessu tilfelli ekki minnstu afskipti af.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
