Viðskipti Miðvikudagur 30.05.2012 - 11:56 - Ummæli ()

Vill upplýsa um eignarhald á 365 – Af hverju stofna þeir ekki bara fyrirtæki á Vopnafirði?

Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, vill að reglur um eignarhald á fjölmiðlum verði skýrðar enn frekar í ljósi þess hversu eignarhald á 365 er óljóst. Hann leggur til að þeir sem reyna að fela eignarhald á fjölmiðlum verði sviptir atkvæðisrétti í stjórn fyrirtækjanna, jafnvel arðsrétti.

Pétur gerði eignarhald á 365 að umræðuefni á Alþingi í dag. Sagði hann eignarhald á þessu stærsta einkafjölmiðlafyrirtæki landsins væri óljóst, sumir lýsi því yfir að þeir eigi hreinlega fyrirtækið á meðan aðrir lýsa því yfir að þeir eiga það ekki.

Spurði Pétur mennta- og menningarmálaráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, að því hvort hún væri sátt við að eignarhald á 365 væri dreift „út og suður“, meðal annars í gegnum Seychelles eyjar og Lúxemborg „þar sem engar upplýsingar er að hafa“.

Og maður veltir fyrir sér, hvernig stendur á því að menn eru að stofna fyrirtæki á Seychelles eyjum, Lúxemborg og út um allt til þess að eiga fjölmiðlafyrirtæki á Íslandi, Íslendingar. Hvaða hvatir eru á bak við? Af hverju stofna þeir ekki bara fyrirtæki í Hafnarfirði eða Vopnafirði eða einhvers staðar?

Spurði Pétur ráðherra að því hvort ekki væri nær að sleppa því alveg að gera þá kröfu að upplýst verði um eignarhald á fjölmiðlafyrirtækjum, eða þá krefjast þess að þetta verði upplýst að fullu.

Katrín sagðist sammála því að umrætt lagaákvæði væri ekki fullkomið. Alþingi vinni nú að endurbótum á fjölmiðlalögum þar sem lagðar eru til takmarkanir á eignarhaldi og auknar heimildir til handa Fjölmiðlanefnd og Samkeppniseftirlitsins. Þessar tillögur gera meðal annars ráð fyrir því að Fjölmiðlanefnd fái auknar heimildir til að krefja fjölmiðlafyrirtæki upplýsinga um eignarhald.

Og af því að háttvirtur þingmaður spyr, þá er svar mitt við því einfalt. Mér finnst ekki að það eigi að sleppa þessu. Mér finnst það mikilvægt fyrir lýðræðisríki að eignarhald á fjölmiðlum sé upplýst. Ég tel hins vegar að það þurfi að skerpa á þeim ákvæðum.

Pétur leggur til að þeir sem „þykjast“ eiga fjölmiðla verði skikkaðir til þess að upplýsa í hörgul um eignarhald niður á einstaklinga, að öðrum kosti missi þeir atkvæðisrétt í fyrirtækinu.

Þeir hafi bara ekki atkvæðisrétt og jafnvel ekki arðsrétt í viðkomandi fjölmiðlafyrirtæki til þess að útiloka það að einhverjir duldir aðilar geti átt þetta í skjóli einhverrra fyrirtækja í Seychelles eyjum, Lúxemborg eða Cayman eyjum eða hvað þetta heitir allt. Tortóla er frægt. Þar sem menn eru í rauninni, að mínu mati, að stofna fyrirtæki til að fela eignarhaldið, til að fela eignarhaldið fyrir skattayfirvöldum, fyrir fjölmiðlanefnd og öðrum sem að eiga að fylgjast með eignarhaldi á fyrirtækjum.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is