Viðskipti Fimmtudagur 31.05.2012 - 19:00 - Ummæli ()

Ný fasteignabóla að myndast – Springur eftir tvö ár verði ekkert að gert

Fasteignabóla að byrja að þenja sig út.

Samkvæmt úttekt Bloomberg fréttastofunar hafa gjaldeyrishöftin gert það að verkum að verð á fasteignum hefur hækkað upp úr öllu valdi. Verði ekki gripið inn í muni bólan að öllum líkindum springa að tveim árum liðnum.

Á síðasta ársfjórðungi náði íbúðarverð nýjum hæðum. Samkvæmt tölum frá Seðlabankanum hefur meðalverð á húsnæði hækkað um 11.3 prósent frá því að markaðurinn var í sem mestri lægð í lok árs 2009.

Gjaldeyrishöftin voru sett á árið 2008 og áttu að koma í veg fyrir fjármagnsstreymi  úr landinu. Þorbjörn Atli Sveinsson, hagfræðingur hjá Arion banka, segir að fjárfestar með andvirði 8 milljarða dollara í krónueignum eigi ekki kost á að koma fjármunum sínum úr landi. Og vegna þess að gjaldeyrishöftin verða ekki afnumin fyrr en í fyrsta lagi árið 2015 streyma nú peningarnir inn í einn af afar fáum fjárfestingarkostum sem telst nokkuð öruggur; húsnæðismarkaðinn.

Ásgeir Jónsson hagfræðingur segir að mikil hætta sé á að eignarbóla myndist í hagkerfinu. Í sama streng tekur Ólafur Ísleifsson hagfræðiprófessor við Háskólann í Reykjavík. Hann segir stóru spurninguna vera þá hvort yfirvöld ætli að bregðast við þessum vanda sem sé í uppsiglingu.

Þó húsnæði sé að seljast ágætlega er hinn almenni leikmaður farinn að halda að sér höndum í ljósi þess að íbúðarverð samræmist í raun ekki því sem átti sér stað árið 2008, þegar markaðir féllu og kreppan skall á.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is