Þráðlaust net í vélum Icelandair – Frítt á Saga og Comfort en rukkað á almenningsfarrými
Í haust munu farþegar Icelandair eiga þess kost að vafra um á internetinu í háloftunum þegar byrjað verður að koma upp þráðlausu neti um borð í flugvélum félagsins.
Samningur þess efnis var undirritaður við bandaríska fyrirtækið Row 44 í dag, en það fyrirtæki mun sjá um innleiðingu netsins. Áætlað er að þráðlausu neti verði komið upp í fyrstu vélarnar í haust og tekur það um það bil eitt ár að netvæða allan flota Icelandair.
Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Icelandair, segir að unnið hafi verið að þessum samningi í eitt ár, eða allt frá því það varð tæknilega mögulegt að bjóða upp á nettengingu yfir hafi. Nú þegar hafa flugfélög á borð við Norwegian og Southwest Airlines tekið þessa þjónustu í gagnið.
Við höfum látið okkar eigið fólk fljúga með þessum félögum til að kanna virknina auk þess sem við höfum farið út til Row 44 og skoðað kerfið. Þetta lítur mjög vel út. Farþegar okkar geta von bráðar verið á Facebook, skoðað póstinn og annað um leið og þeir ferðast. Við höfum að undanförnu sett ný sæti og komið upp afar góðu afþreyingarkerfi og þetta er enn einn liðurinn í því að bæta upplifun farþega og okkar þjónustu,
segir Birkir Hólm sem á ekki von á öðru en að flugfarþegar taki þessari nýjung fagnandi, enda Íslendingar með endemum nýjungagjarnir.
Netsamband um borð verður órofið allt frá flugtaki til lendingar, ef undan er skilinn stuttur kafli yfir Kanada á leiðinni til Seattle. Þar næst ekki gervihnattasamband.
Netþjónustan verður ókeypis á Saga Class og Economy Comfort, en Birkir segir að rukkað verði „hóflegt gjald“ á almenningsfarrými.
Það á enn eftir að ákveða hversu hátt það gjald verður en við munum horfa til annarra flugfélaga í þessum efnum, þar sem sami háttur er hafður á. Þetta er líka gert svo að nettengingin um borð verði góð, því hún verður hægari ef allir um borð eru tengdir.
Með þráðlausu neti opnast fleiri tekjumöguleikar fyrir Icelandair, þar sem hægt verður að selja auglýsingar, vörur og aðra þjónustu í gegnum netið.
Icelandair hefur verið í mikilli sókn að undanförnu eftir nokkurn samdrátt eftir bankahrunið. Leiðakerfið hefur aldrei verið stærra og segir Birkir að félagið sé alltaf með augun opin fyrir nýjum áfangastöðum. Engar ákvarðanir hafa þó verið teknar í þeim efnum.
Nýlega hóf félagið flug til Denver í Bandaríkjunum og segir Birkir að viðtökurnar hafi verið eftir væntingum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is