Viðskipti Laugardagur 02.06.2012 - 10:00 - Ummæli ()

Forstjóri Alþjóðabankans með skýra aðvörun: Verður sumarið nú endurtekning á hruninu 2008?

Robert Zoelilick, forstjóri Alþjóðabankans, segir skynsamlegt að búa sig undir það versta í efnahagsmálum og margt bendi til þess að annað efnahagshrun geti orðið á helstu mörkuðum heims og varð síðla árs 2008 með víðtækum afleiðingum um heim allan — eins og við Íslendingar vitum allt um.

Zoellick lét þessi ummæli falla í gær eftir að markaðir tóku enn eina dýfuna, en hann lætur af embætti á næstu vikum eftir fimm ár við stjórnvölinn. Hann tiltók sérstaklega að evrusvæðið væri í mikilli hættu og því færi fjarri að leiðtogar evruríkjanna væru nægilega búnir undir afleiðingar brotthvarfs Grikkja úr myntsamstarfinu og mögulegs hruns á Spáni.

Fjölmiðlar hafa skýrt frá gríðarlegum fjármagnsflutningum síðustu daga þar sem áhyggjufullir fjárfestar og fjármagnseigendur færa fjármuni frá svæðum í vanda og yfir til landa sem talin eru öruggari. Þetta virkar vitaskuld eins og að hella olíu á eld, þar sem bankar í Grikklandi, Spáni og Portúgal, svo dæmi séu tekin, horfa upp á gríðarlegar fjárhæðir streyma rafrænt yfir til Þýskalands og Bretlands og einnig Bandaríkjanna.

En jafnvel í þeim löndum eru horfur ekki svo góðar; enda hagkerfi heims orðið nátengt innbyrðis. Markaðir beggja vegna Atlantshafsins féllu í gær og svartsýni hefur aukist, m.a. vegna nýrra atvinnuleysistalna.

Zoellick segir að næstu mánuðir geti orðið með líkum hætti og síðustu vikurnar fyrir fall bandaríska fjárfestingabankans Lehman Brothers árið 2008:

Atburðir í Grikklandi geta leitt af sér óttaviðbrögð á Spáni, Ítalíu og víðar á evrusvæðinu. Sumarið 2012 gæti verið endurtekning á 2008.

Forstjórinn bætti við að ómögulegt væri að spá fyrir um afleiðingar hruns í einu landi á stærra svæðið. Smithættan sé raunveruleg og hana eigi að taka alvarlega.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is