Orkuveita Reykjavíkur semur við DePfa bankann um breytingu á afborgunum
Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur samið við DePfa Bank plc um breytingar á afborgunum 30 milljóna evra láns, sem var með einn gjalddaga á árinu 2016. Það svarar til um 4,9 milljarða íslenskra króna. Samkvæmt samkomulaginu, sem háð er staðfestingu eigenda OR, verður meginhluti afborgana á árunum 2023-2025.
Eins og tilkynnt var 24. maí sl. hefur OR einnig samið við Dexia Crétid Local um breytingu á afborgunum lána í því skyni að renna traustari stoðum undir framkvæmd Plansins – aðgerðaáætlunar OR og eigenda, sem samþykkt var í mars 2011. Planið nær til áranna 2011 til og með 2016 og er ætlað að bæta sjóðstreymi fyrirtækisins um 50 milljarða króna á árabilinu 2011 til og með 2016.
Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, er ánægður með tíðindin:
Á síðustu vikum og mánuðum hefur traust Orkuveitunnar á fjármálamörkuðum aukist. Þeir samningar, sem gerðir hafa verið við evrópsku bankana tvo, Depfa og Dexia, staðfesta það. Til að byggja ofan á það traust, sem þegar hefur skapast, munum við vinna áfram af einurð eftir þeirri mikilvægu áætlun sem fyrirtækið og eigendur standa sameiginlega að.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is