Laugardagur 02.06.2012 - 11:35 - Ummæli ()

Þóra Arnórsdóttir mætir ekki Ólafi Ragnari á Stöð 2: Stríðir gegn sannfæringu og réttlætiskennd

Ólafur Ragnar og Þóra áttu að eiga sviðið í Hörpunni næstkomandi sunnudagskvöld.

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi hefur afþakkað boð Stöðvar 2 um að mæta Ólafi Ragnari Grímssyni forseta Íslands í kappræðum annað kvöld í beinni útsendingu.

Í yfirlýsingu frá Þóru Arnórsdóttur sem barst í morgun segir:

Fyrir nokkru fékk ég boð frá Stöð 2 um að mæta til sjónvarpsumræðna að kvöldi sjómannadags, 3. júní. Ég hef tekið ákvörðun um að þiggja ekki þetta boð og ítreka fyrri áskorun mína til Stöðvar 2 um að breyta viðmiðum sínum um hverjum verði boðið til þessarar fyrstu sjónvarpsumræðu.

Þegar boðið barst mér sendi ég forsvarsmanni Stöðvarinnar bréf og óskaði eftir því að fyrirkomulag umræðunnar yrði endurskoðað. Lýsti ég því sjónarmiði að þátturinn markaði í raun upphaf kosningabaráttunnar. Það væri okkar litla lýðræðisríki nauðsynlegt á þessum tímapunkti að allir þeir sem fengið hefðu staðfestingu á löglegu framboði fengju jafnt tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Ég þáði því aldrei boðið.

Ég hef haft það viðmið að svara öllum fjölmiðlum sem hafa óskað eftir viðtali, stórum og litlum, innlendum sem erlendum og hef ekki skipt mér af þeirra fréttamati. Ég hlakka til að mæta Ólafi Ragnari Grímssyni í umræðum í sjónvarpssal, en ekki á kostnað annarra frambjóðenda.

Það er ekki sjálfsagt fyrir frambjóðanda að afþakka tækifæri til þess að koma fram í sjónvarpi í beinni útsendingu í meira en klukkustund og koma sinni sýn á framfæri.
En ég hef sagt frá upphafi að ég vilji geta verið stolt af öllu því sem ég hef sagt og gert í þessari kosningabaráttu – og það gengur einfaldlega gegn minni sannfæringu og réttlætiskennd að þiggja þetta boð.

Þóra Arnórsdóttir.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is