Sunnudagur 03.06.2012 - 19:14 - Ummæli ()

Andrea, Hannes og Ari Trausti gengu út úr beinni útsendingu

Ari Trausti Guðmundsson, Hannes Bjarnason og Andrea Ólafsdóttir gengu út úr kappræðum Stöðvar 2 fyrr í kvöld. Ástæðan var óánægja með fyrirkomulag kappræðnanna.

Kappræðurnar hófust klukkan 19. Strax í upphafi lásu þau Ari Trausti, Andrea og Hannes upp yfirlýsingu sína þar sem þau lýstu yfir óánægju sinni með fyrirkomulag kappræðnanna.

Ljóst er að sá kappræðufundur sem okkur var boðinn til er í raun fundur með spurningum og svörum til tveggja frambjóðenda í einu og þar með fjarri öllum umræðum frambjóðendanna sex. Af þessu fréttum við í dag og Þóra og Ólafur Ragnar standa saman í lokin eins og upphaflega var áætlað,

segir í yfirlýsingunni auk þess sem skorað á aðra frambjóðendur að gera slíkt hið sama. Sögðu þau að þeim væri „misboðið“ vegna þessa og yfirgáfu sviðið.

Eftir stóðu Ólafur Ragnar, Þóra og Herdís sem létu þessa ákvörðun ekki hafa áhrif á sig.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is