Mánudagur 04.06.2012 - 17:20 - Ummæli ()

Dómari í réttarhöldunum gegn Breivik gripinn í tölvuspili

Hér sést dómarinn leggja kapal í tölvunni. Mynd/nrk.no, skjáskot

Einn af fimm dómurum í réttarhöldunum yfir fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik varð uppvís af því að leggja kapal í fartölvu sinni á meðan vitnaleiðslur stóðu yfir.

Það var norska ríkisútvarpið, NRK, sem náði mynd af dómaranum Ernst Henning þar sem hann spilar hinn vinsæla tölvukapal solitaire í réttarsalnum.

Þetta átti sér stað þegar Mattias Gardell, prófessor í trúarbragðasögu, útskýrði fyrir réttinum þá hugmyndafræði sem kann að hafa legið að baki ódæðum Breivikds.

Dómararnir fylgjast vel með því sem sagt er og fram fer í réttarsalnum. Þeir nota mismunandi aðferðir til að halda einbeitingu,

hefur NRK eftir Irene Ramm, talsmanni réttarins sem neitaði að tjá sig frekar um málið. Hún gagnrýndi þó að teknar hafi verið myndir af borðum dómaranna, þar sem þar megi finna viðkvæm gögn.

Saksóknarar og lögmenn Breiviks vildu sem minnst gera úr þessu. Það sama gerðu aðrir lögfræðingar sem NRK leitaði til.

Þetta er ekki mjög alvarlegt. Það er hægt að sitja og leggja kapal í nokkrar mínútur og halda um leið fullri einbeitingu. Þetta lítur illa út svo ég held að hann spili ekki framar eftir þetta,

segir lögmaðurinn Harald Stabell við NRK.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is