Salman Rushdie: Þetta var bara í fyrsta skipti sem þeir reyndu að drepa mig
„Það eina sem er verra en slæm umsögn frá Ayatollah Khomeini er góð umsögn frá Ayatollah Khomeini,“ segir rithöfundurinn Salman Rushdie sem hefur upplýst að hann geti ekki með nokkru móti lesið sínar eigin bækur.
Árið 1988 gaf Rushdie út bókina Sálmar Satans sem olli gífurlegri reiði meðal múslíma. Efnt var til bókabrenna víða um heim og sjálfur leitaði Rushdie á náðir breskra löggæsluyfirvalda sem skutu yfir hann skjólshúsi. Í hartnær áratug fór hann huldu höfði eftir að klerkastjórnin í Íran kallaði eftir aftöku hans.
Rushdie rifjar upp viðbrögðin við bókinni í viðtali við breska blaðið Telegraph.
Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þeim [klerkastjórninni í Íran] mislíkaði það sem ég skrifaði, heldur bara í fyrsta skipti þeir reyndu að drepa mig. En ég var ekki að skrifa fyrir klerkana, ég held að þeir séu ekki markhópurinn minn. Það eina sem er verra en slæm umsögn frá Ajatolla Khomeini er góð umsögn frá Ajatolla Khomeini,
segir Rushdie sem segir að Sálmar Satans hafi verið vel heppnuð, enda eigi hún enn við í dag.
Það er eina ástæðan fyrir því að bækur endast. Það eru bókaunnendur sem láta bækur endast, ekki fólkið sem ræðst á þær.
Í viðtalinu gagnrýnir Rushdie harðlega hversu langt vestræn yfirvöld hafa gengið í að skerða athafnafrelsi þegna sinna vegna hryðjuverkaógnarinnar. Sjálfur þekkir Rushdie slíkar aðstæður, enda var hann undir vökulu auga bresku leyniþjónustunnar í hartnær áratug.
Allir sem hafa reynslu af því að fara í gegnum öryggishlið í Bandaríkjunum vita að tilgangur þessarar öryggisgæslu er ekki að gera þig öruggari, heldur til að angra þig. Það er ekki til neitt sem heitir fullkomið öryggi, heldur aðeins mismunandi stig óöryggis,
segir Rushdie.
Í Ameríku, og ekki bara í Ameríku, erum við í þeirri stöðu að almennt framsækinn og frjálslyndur forseti hefur undirritað lög sem leyfa að fólki sé haldið föngnu ótímabundið án ákæru. Þetta eru öfgafull inngrip í réttindi okkar allra. Ólíkt sumum, þá trúi ég því að þarna úti sé raunverulegur óvinur; það er fólk sem, ef ekki verður haldið aftur af því, vill valda vestrænum lýðræðissamfélögum skaða. Það leikur enginn vafi á því. En spurningin er alltaf sú hvernig það á að bregðast við því.
Rushdie upplýsir í viðtalinu að hann hafi aldrei lesið sín eigin verk.
Ég les ekki bækurnar mínar, ég skrifa þær. Það tekur mig mörg ár að skrifa þær og þegar ég hef loksins lokið við það, þá afber ég ekki að lesa þær því ég hef þegar eytt nógu miklum tíma í þær. Þetta er ekki sérlega góð auglýsing fyrir bækurnar mínar, er það?
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
