Tóbaksrisi í mál við norska ríkið: Vill hafa tóbak til sýnis – Sambærileg lög á Íslandi

Philip Morris, sem framleiðir meðal annars Marlboro vindlinga, vill fá að hafa vörur sínar til sýnis í Noregi.
Réttarhöld í máli bandaríska tóbaksframleiðandans Philip Morris gegn norska ríkinu hófust í gær. Fyrirtækið vill fá banni um að hafa tóbaksvörur til sýnis í verslunum hnekkt. Sambærileg lög eru í gildi á Íslandi.
Algert bann ríkir við að auglýsa tóbaksvörur í Noregi. Árið 2009 var lögunum breytt á þann veg að bannað var að hafa tóbaksvörur til sýnis, nema í sérstökum tóbaksbúðum. Sambærileg lög hafa verið sett á Íslandi og Írlandi.
Philip Morris höfðaði mál gegn norska ríkinu árið 2010. Leitað var ráðgefandi niðurstöðu EFTA dómstólsins sem komst að þeirri niðurstöðu í desember í fyrra, að norskum stjórnvöldum hafi verið heimilt að setja þessi lög enda miða þau að því að draga úr tóbaksneyslu. Sagði í áliti dómstólsins að bönn eða höft sem miði að því að vernda líf og heilsu manna samræmist ákvæðum EES samningsins.
Þrátt fyrir álit EFTA-dómstólsins ætlar Philip Morris að halda málinu til streitu.
Ástæðan fyrir því að við höfðum þetta mál er sú að ef það er óleyfilegt að hafa vörurnar til sýnis, sem er tilfellið í Noregi, þá er afar erfitt að keppa á markaðinum…þetta er jú eftir allt saman lögleg vara,
er haft eftir talskonu fyrirtækisins, Anne Edwars, á fréttavefnum thelocal.no.
Norsk stjórnvöld standa fast á sínu og segir talsmaður norsku krabbameinssamtakanna að bannið hafi reynst afar vel. Talsmaður Philip Morris er ekki á sama máli.
Þetta bann hefur afar hamlandi áhrif á samkeppni, en á sama tíma hefur það ekki haft nein áhrif á neyslu. Við erum með gott mál í höndunum,
segir Edwards og bætir því við að einu áhrif bannsins hafi verið stóraukning í ólöglegum innflutningi tóbaks.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is