Þóra segist ekki hafa vitað af ósætti annarra frambjóðenda – Ótrúverðugt handrit
Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi, segist ekki hafa vitað af ósætti mótframbjóðenda sinna Ara Trausta Guðmundssonar, Herdísar Þorgeirsdóttur, Andreu Ólafsdóttur og Hannesar Bjarnasonar með fyrirkomulag sjónvarpskappræðna á Stöð 2.
Þau Ari Trausti, Andrea og Hannes sýndu óánægju sína í verki með því að ganga út, en Herdís tók þá ákvörðun að vera áfram. Þóra segir að hana hafi ekki grunað hvað var í vændum.
Hefði þetta verið sjónvarpshandrit þá hefði því verið hafnað því þetta hefði þótt of ótrúverðugt,
sagði Þóra á vinnustaðafundi á Fljótsdalshéraði í gær, að því er Austurglugginn greinir frá.
Þóra segir að skiptar skoðanir hafi verið meðal stuðningsmanna hennar um hvort hún ætti að mæta Ólafi einum eins og upphaflega stóð til. Sumir hafi bent á að Ólafur Ragnar, sem mikið hefði rætt og ritað um lýðræði, ætlaði að vera með og fyrirkomulagið virtist ekki angra hann. Niðurstaðan hafi samt verið sú að standa föst á sínum prinsippum og afþakka þátttöku degi áður en kappræðurnar áttu að fara fram. Það varð til þess að Stöð 2 bauð öllum frambjóðendum.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
