Föstudagur 08.06.2012 - 12:45 - Ummæli ()

Hverjir voru eiginlega á Austurvelli í gær? Þingmenn rífast um samsetninguna

Hátt í tvö þúsund manns mættu á Austurvöll í gær. Mynd/Pressphotos.biz

Þingmenn rifust í morgun um hversu vel heppnaður útifundur sem LÍÚ boðaði til á Austurvelli í gær hafi verið. Þingmenn Samfylkingarinnar segja að aldrei hafi einn fundur mistekist jafnsvakalega á meðan þingmenn Framsóknar saka þá um að endurskrifa söguna.

Hátt í 2 þúsund manns mættu á Austurvöll í gær þar sem Landsamband íslenskra útvegsmanna hafði boðað til samstöðufundar. Hluti hópsins var hins vegar mættur til að mótmæla framgöngu útgerðarmanna og það var það sem þingmenn deildu um í morgun,  hverjir voru að mótmæla ríkisstjórninni og hverjir útgerðarmönnum.

Ólína þorvarðardóttir sagði uppákomuna í gær hafa verið sérkennilega og talaði um bjarmalandsför útgerðarinnar á Austurvölld

Eftir þá mestu áróðurs- og auglýsingaherferð sem að nokkur samtök hafa ráðist í, eftir að þau höfðu stefnt öllu sínu starfsfólki til fundar á Austurvelli og 70 skipum að landi, þá komu á annað þúsund manns á Austurvöll, þar af jafnstór hópur til að mótmæla þeim áróðri sem á sér stað.

Sagði Ólína að nú loksins hafi almenningur látið í sér heyra eftir að LÍÚ hafi yfirskyggt umræðuna í þrjú ár.

Það er sá hluti, sú rödd í þessari umræðu, sem ekki hefur verið boðinn míkrófónninn, ekki hefur verið boðið að samráðsborði eða samningaborði í þessari umræðu…Á þessa rödd ber stjórnvöldum að hlusta.

Mörður Árnason tók undir þetta.

Ég held að aldrei í Íslandssögunni hafi verið boðað til fundar með jafnmiklum peningaaustri, aldrei hafi fararskjótar til fundarins verið gerðir út jafn dýrlega og aldrei hafi fundur mistekist jafnsvakalega og sá fundur sem hér var haldinn á Austurvelli í gær.

Sagði Mörður að í gær hafi átt að fara fram táknræn valdataka sem breyta átti málinu útgerðarmönnnum í hag með fulltingi Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Svo hafi ekki verið og því verði þessir aðilar að láta lýðræðið hafa sinn gang og hætta frekara málþófi um málið.

Gunnar Bragi Sveinsson, Framsóknarflokki, sagði bráðskemmtilegt að heyra þingmenn Samfylkingarinnar tala um sjávarútvegsmál. Því meira sem þeir geri það, því minna verður fylgi flokksins. Hins vegar sé sorglegt að heyra þá tala niður til þeirra tugþúsunda sem vinna í sjávarútvegi.

Sigurður Ingi Jóhannsson sagði þingmenn Samfylkingarinnar strax farna að endursemja sögu gærdagsins. Í gær hafi sjómenn í fyrsta skipti streymt til Reykjavíkur og sagt hingað og ekki lengra.

Við ætlum ekki að halda áfram að moka peningum til Reykjavíkur, gera greinarnar okkar gjaldþrota og fólkið verður þá að fara til Reykjavíkur eða til fyrirheitna landsins, Evrópusambandsins, ef það er það sem Samfylkingin vill. Hingað og ekki lengra. Hættið að endursemja söguna.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is