Sparisjóðirnir að deyja út? Gengislánadómar gætu veitt þeim fáu sem eftir eru náðarhöggið
Svo gæti farið að í lok árs verði einungis sjö starfandi sparisjóðir eftir í landinu, en þeir eru nú 10 talsins. Af þessum sjö sparisjóðum eru tveir sparisjóðir með eiginfjárhlutfall undir lögboðnu lágmarki. Aðrir sparisjóðir eru með eiginhlutfall nálægt þeirra lögbundna lágmarki og svo geti farið að gengislánadómar Hæsaréttar veiti þeim sparisjóðum náðarhöggið.
Þetta kemur fram í riti Seðlabanka Íslands um fjármálastöðugleika sem gefið var út í vikunni. Sparisjóðum hefur fækkað ört á síðustu árum og voru einungis 10 slíkir starfandi á landinu um áramót. SpKef hvarf inn í Landsbankann í fyrra og áður hafði Byr hf. fengið viðskiptabankaleyfi.
Rekstur Sparisjóðanna hefur gengið brösulega og voru sex þeirra reknir með tapi í fyrra og hagnaður hinna var nánast enginn að Afli sparisjóði undanskildum sem sýndi umtalsverðan hagnað. Sá hagnaður er hins vegar til kominn vegna niðurfærslu á skuldum sjóðsins við Arionbanka.
Að mati Seðlabankans liggur vandi sparisjóðanna í háum rekstrarkostnaði í hlutfalli af reglulegum tekjum.
Hugsanlegt er fyrir að sparisjóðirnir verði einungis sjö talsins í lok árs. Samkomulag hefur náðst um kaup Landsbankans á Sparisjóði Svarfdæla og Arion banki og Sparisjóður Ólafsfjarðar munu sameinast. Loks á Arion banki 94,45 prósent hlutafjár í Afli sparisjóði og hefur bankinn haft í hyggju að sameina sjóðinn bankanum. Það hefur þó ekki enn gerst vegna skorts á atkvæðamagni.
Af þessum sjö sparisjóðum eru tveir með eiginfjárhlutfall undir lögbundnu lágmarki. Þetta eru Sparisjóður Vestmannaeyja og Sparisjóður Bolungarvíkur. Fjármálaeftirlitið hefur veitt þessum sparisjóðum tiltekinn frest til að skila inn greinargerð þar sem fram kemur til hvaða ráðstafana sjóðirnir hyggjast grípa.
Sparisjóður Suður-Þingeyinga og Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis eru með eiginfjárhlutfall nálægt þeirra lögbundna lágmarki og gætu gengislánadómar Hæstaréttar um fullnaðarkvittanir haft alvarlegar afleiðingar fyrir þá sjóði.
Það er því nokkuð ljóst að sparisjóðirnir standa höllum fæti og forsendur fyrir áframhaldandi rekstri margra þeirra eru að óbreyttu veikar,
segir í riti Seðlabankans.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
