Facebook lokaði á myndband stuðningsmanna Þóru
Ungir stuðningsmenn Þóru Arnórsdóttur, forsetaframbjóðanda, deildu á hádegi í dag nýju myndbandi á Facebook sem sýnir hvað þeim finnist einkenna góðan forseta, og af hverju þau sameinist um Þóru.
Myndbandinu var deilt svo hratt að sjálfvirkt varnarkerfi Facebook fór í gang og lokaði á það. Ástæðan sem Facebook gaf upp var sú að þeir töldu myndbandið vera fjölpóst. Um klukkustund síðar var búið að fá það samþykkt á nýog myndbandið birtist á ný og hafa nú tæplega 7.000 manns séð færsluna á Facebook.
Myndbandið var unnið af nokkrum ungum stuðningsmönnum Þóru og má meðal annars sjá tónlistarmennina Unnstein Manúel í Retro Stefsson, Dóra DNA og Hjalta Jón Sverrisson í hljómsveitinni Miri. Þar eru einnig Inga Lind Karlsdóttir og María Rut Kristinsdóttir sem situr í Háskóla- og Stúdentaráði fyrir Vöku, ásamt núverandi og nýútskrifuðum framhaldsskólanemum sem áberandi hafa verið í félagsstarfi skólanna.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
