Flokksbræður Ármanns vilja að hann dragi „óeðlilega“ launahækkun sína til baka
Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, gagnrýnir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóra og oddvita sjálfstæðismanna í Kópavogi, fyrir þau ummæli sín að 23% hækkun á eigin launum og launum bæjarfulltrúa sé ekki launahækkun heldur leiðrétting.
Í tilkynningu frá Tý segir að bæjarbúar hafi þurft að taka á sig verulegar skattahækkanir frá hruni, enda fjárhagsstaða sveitarfélagsins mjög slæm. Má þar nefna að Kópavogsbær skuldar yfir 200 prósent af heildar árstekjum, sem er töluvert yfir leyfilegu hámarki samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
Það er því mjög óeðlilegt og ótímabært að bæjarstjóri og meirihlutinn í bænum gangi fram með því fordæmi að hækka eigin laun áður en að bæjarbúar hafa fengið leiðréttingu á þeim skattahækkunum sem þeir hafa þurft að taka á sig,
segir í yfirlýsingunni. Týr hvetur bæjarstjóra og meirihlutann í bænum til að draga til baka umræddar launahækkanir
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is