Andrea tilbúin að leggja fram frumvörp á Alþingi verði hún forseti
Andrea Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, segist tilbúin til þess að leggja fram frumvarp til laga á Alþingi, verði hún kjörin forseti. Hún segist ætla að beita áhrifum sínum í embætti til að ná fram lausn í skuldamálum heimilanna.
Þetta sagði Andrea í Beinni línu á dv.is, þar sem hún svaraði spurningum lesenda. Andrea, sem er fráfarandi formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, var meðal annars spurð að því hvernig hún ætlaði að beita sér fyrir hag heimilanna í embætti forseta.
Andrea segir að skuldavandi heimilanna sé eitt þeirra mála sem þinginu hafi ekki tekist að leysa „árum eða áratugum saman.“ Telur hún mjög mikilvægt að leysa úr þeim vanda og leiðrétta þá eignatilfærslu sem varð í kjölfar hrunsins, meðal annars til að ná fram því uppgjöri sem fólk þráir að sjá.
Ég vil vera milliliður að því valdi sem býr í stjórnarskránni í embætti forseta til þess að leysa þessi mál og ná samfélgslegri sátt,
segir Andrea sem segir mikilvægt að senda fjármálakerfinu skýr skilaboð um að núverandi kerfi gangi ekki upp.
Aðspurð segist Andrea „að sjálfsögðu“ munu beita málskotsrétti forseta verði hún kjörin forseti. Einnig er hún þeirrar skoðunar að 25. grein stjórnarskrárinnar, sem segir að forseti geti lagt fram frumvarp til laga á Alþingi, sé virk. Hún telur þó að eingöngu eigi að beita því ákvæði til að „brúa þessa margumtöluðu gjá milli þings og þjóðar.“ Til þess að svo verði þarf þjóðin að kalla eftir því og yrði það útfært þannig að þingmaður, eða ráðherra eftir atvikum, leggur frumvarpið fram fyrir hönd forseta.
Ég get leyst úr lánamálunum með fleiri en einum hætti og hef bent á nokkrar lausnir sem miðast að því að það komi alls ekki niðri á ríkissjóði. En ég held jafnframt að það verði að koma fram að þótt ég hafi vakið máls á 25. grein stjórnarskrárinnar um að „forsetinn getur látið leggja fram frumvarp til laga“ að þá geti verið nóg að fólkið kjósi sér forseta sem er tilbúinn að beita valdheimildum sínum til að leysa mál – og þá muni þingið taka við sér og leysa úr þeim hratt og örugglega. Aðhaldið er komið strax með því að kjósa slíka manneskju í embættið.
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is
