Miðvikudagur 13.06.2012 - 08:30 - Ummæli ()

Steingrímur sakar Moggann um lágkúru: Hvernig ætli að eigendum blaðsins líði?

Steingrímur J. Sigfússon vandar Morgunblaðinu ekki kveðjurnar. Eyjan/Gunnar

„Morgunblaðið hefur nú endurunnið 15-20 ára gamlar upplýsingar um að ég hafi um skeið átt hlutafé í Hraðfrystistöð Þórshafnar.  Og ekki bara ég heldur bræður mínir tveir og faðir minn heitinn…Allt er þetta á þvílíku lágkúrplani hjá blaðinu og tilgangurinn svo dapurlega augljós,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Mogginn gerði á dögunum ítarlega úttekt á eignarhlut Steingríms og fjölskyldu hans í Hraðfrystistöð Þórshafnar, en hann seldi sinn hlut í félaginu árið 2006.

Steingrímur er ekki par hrifinn af þessari umfjöllun Morgunblaðsins og segir í aðsendri grein í blaðinu:

Það liggur mikið við hjá Morgunblaðinu að sverta mannorð undirritaðs þessa dagana. Ekki virðast reglubundnir níðdálkar blasins, Staksteinar og leiðarar, þar sem undirritaður er sagður koma títt við sögu, duga. Ef til vill átta höfundar sig á því að sómakært fólk gefst upp við lesturinn og mun þess að sögn gæta allverulega í minnkandi áskrifendafjölda. Morgunblaðið grípur því í viðbót til þess úrræðis sem alla jafnan hefur verið talið lægsta stig umræðu og til marks um að rökin eru þrotin, að hjóla í manninn. Á tímum Evrópukeppni í knattspyrnu er samlíkingin nærtæk. Víðtækari útgáfa þessarar aðferðar er að taka ekki aðeins viðkomandi einstakling fyrir heldur fjölskyldu hans líka og skiptir þá ekki máli hvort lífs eða liðnir eiga í hlut. Oft hef ég velt því fyrir mér hvernig eigendum blaðsins líði, standandi með fé sínu og kostar víst sitt, fyrir því að blað þessarar gerðar komi út. En það er önnur saga,

segir Steingrímur, en það er kannski viðeigandi að bæði í Staksteinum blaðsins í dag og í leiðara er Steingrímur harðlega gagnrýndur vegna SpKef. Hann segir skrif Morgunblaðsins á „þvílíku lágkúruplani“.

…og tilgangurinn svo dapurlega augljós, nú mitt í yfirstandandi glímu um sjávarauðlindina, að svör af minni hálfu við þessum málflutningi sem slíkum væru ofrausn,

segir Steingrímur en svarar þó skrifunum í löngu máli, þar sem hann segist stoltur af aðkomu sinni að uppbyggingu atvinnulífs á Þórshöfn.

Steingrímur rifjar upp að á árunum 1988 til 1990 átti Hraðfrystistöð Þórshafnar (HÞ) í umtalsverðum rekstrarerfiðleikum, líkt og mörg önnur útflutningsfyrirtæki. Nauðsynlegt reyndist að endurfjarmagna mörg þessara fyrirtækja, þar sem talið HÞ, og eignaðist opinber sjóður 49 prósent hlutafjárins.

Heimamenn höfðu hins vegar fullan hug á því að endurheimta forræði yfir fyrirtækinu og færa það aftur í heimabyggð. Fyrst var hlutafé aukið heimafyrir með þátttöku sveitarfélaganna og lækkaði þá eignarhlutur ríkisins. Því næst var safnað liði og starfsmenn og fyrrverandi starfsmenn (undirritaður er meðal þeirra), aðrir heimamenn og brottfluttir voru hvattir til að taka þátt í kaupum á eignarhlut ríkisins aftur heim. Ríkið fékk með kaupum heimamanna sitt til baka með hagnaði eins og almennt varð eftir hina vel heppnuðu aðgerð (sjóðasukkið sem ónefndur maður kallaði svo) og heimaaðilar endurheimtu fullt forræði yfir fyrirtækinu.

Steingrímur segir að muni hann rétt hafi á annað hundrað einstaklingar orðið við þessu kalli. Sjálfur tók hann lán fyrir því hlutafé sem hann lagði fram og borgaði hann af því vexti og afborganir allt þar til yfirtökuskylda myndaðist í fyrirtækinu. Þá hafi hann eins og flestir aðrir látið hlut sinn af hendi.

Ég greiddi þar með upp lánin og eftir varð vissulega nokkur afgangur, en ekki sú fjárhæð að það ætti að valda þeim andvökum sem þekkja hærri tölur, t.d. um taprekstur Morgunblaðsins undanfarin ár. Ef ekki hefði komið til yfirtökunnar og heimamenn hefðu enn forræði fyrirtækisins í sínum höndum, geri ég ráð fyrir að ég ætti áfram þennan litla hlut. Og vel að merkja fyrir áhuga sakir. Síðan hvenær varð það syndsamlegt athæfi að mati Morgunblaðsins að einstaklingar legðu fram hlutafé til atvinnuuppbyggingar? Nema það sé bannað ef aðrar hvatir en gróðahyggja liggja að baki?

Greininni lýkur Steingrímur á því að minnast á að hann eigi einnig hlut í Fjallalambi, sláturhúsi og kjötvinnslu bænda á Norðausturlandi.

Það eiga einnig bræður mínir, bændurnir á Gunnarsstöðum. Vill kannski Mogginn kafa ofaní það hneyksli næst? Verst að það verður heldur ekki beinlínis ný frétt…Dæmi nú hver fyrir sig. Annars vegar um minn hlut í þessu máli og hins vegar um blaðamennsku Morgunblaðsins, þ.e.a.s. ef viðeigandi er í þessu tilviki að nota það orð


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is