Miðvikudagur 13.06.2012 - 11:08 - Ummæli ()

Þingmenn rífast um þinglok – Sakaði Jóhönnu um að skemma samkomulag

Allt stefnir í að boðað verði til þings í júlí.

Stjórnarandstaðan er verulega ósátt við að boðað verði til þingfunda í júlí, eins og allt stefnir í að verði. Þingmaður Framsóknarflokksins sakaði Jóhönnu Sigurðardóttur um að hafa sprengt upp þá sátt sem virtist í sjónmáli.

Í gærkvöldi slitnaði upp úr samningaviðræðum formanna þingflokkanna um þinglok og stefnir í að boðað verði til sumarþings þann 2. júlí, að því er Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, upplýsti á Alþingi í morgun.

Ragnheiður Elín sagði að ekki sé hægt að kenna óbilgjarnri stjórnarandstöðu um þessa niðurstöðu, enda hafi 54 stjórnarfrumvörp verið samþykkt á yfirstandandi þingi, þar af 30 frá 1. júní. Segir hún að stjórnarandstaðan hafi margoft lýst því yfir að þau mál sem séu vel unnin og fengið hafa eðlilega þingmeðferð fái að fara í gegn.

Hins vegar séu sjávarútvegsmálin í ógöngum og stjórnarflokkarnir vilji ekki horfast í augu við það að kvótafrumvörpin tvö séu stórskaðleg. Málið snúist því um að ríkisstjórnin sé þegar búin að ráðstafa þeim fjármunum sem eiga að koma í gegnum veiðigjöldin, en ekki hagsmuni sjávarútvegs.

Ásmundur Einar Daðason, Framsóknarflokki, benti á að allt þangað til í gær hafi verið útlit fyrir að samkomulag um þinglok væri í höfn. Þær viðræður hafi átt sér stað á meðan Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hafi verið stödd erlendis.

Svo komur hún heim í gærmorgun og þá sýður allt upp úr í þessum samningum,

sagði Ásmundur Einar. Sagði hann forsætisráðherra ekki virðast geta tekið friðinn þegar ófriður er í boði. Það hafi Jóhanna sýnt þau 30 ár sem hún hafi setið á þingi.

Mörður Árnason, Samfylkingunni, vísaði til þess ákvæðis þingskapa að þingforseti eða hópur þingmanna geti tekið sig saman og lagt til að umræðu verði hætt og gengið verði til atkvæða. Bað Mörður formenn þingflokkanna um að hafa þetta í huga og ýjaði að því að þessu ákvæði kunni að verða beitt.


«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is