Miðvikudagur 15.08.2012 - 15:57
- Ummæli
()
Guðmundur Rúnar Árnason, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og fyrrum bæjarstjóri, hefur verið ráðinn verkefnisstjóri hjá Þróunarsamvinnustofnun Íslands í Malaví.
Guðmundur Rúnar heldur til Malaví ásamt fjölskyldu sinni í næsta mánuði. Meginverkefni hans verður að styðja við héraðsstjórn Mangochi héraðs í suðurhluta Malaví þar sem ÞSSÍ styrkir héraðið í lýðheilsu, vatns- og menntamálum, auk stjórnsýslu.
Það má segja að hér sé gamall draumur okkar hjóna að rætast. Við ræddum það oft á námsárunum að það væri örugglega gefandi og krefjandi að sinna störfum af þessu tagi og ég er viss um að menntun, starfsreynsla og lífsreynsla eiga eftir að nýtast vel við þau krefjandi verkefni sem framundan eru. Þegar starfið var auglýst síðastliðið vor dró það strax að sér athygli okkar. Ég er mjög spenntur og það á við um alla fjölskylduna,
segir Guðmundur Rúnar. Hann lauk BA prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1985. Ári síðar lauk hann meistaraprófi í sömu fræðum frá London School of Economics og doktorsprófi þaðan árið 1991.
Guðmundur Rúnar hefur stundað háskólakennslu og rannsóknir í félagsvísindum. Hann var ritstjóri Vinnunnar og upplýsingafulltrúi ASÍ í áratug. Hann hefur verið bæjarfulltrúi í Hafnarfirði frá árinu 2002 og gegndi starfi bæjarstjóra á árunum 2010 til 2012. Hann er kvæntur Ingibjörgu Jónsdóttur, félagsfræðingi. Með þeim til Malaví fara dætur þeirra, Ágústa Mithila, 13 ára, og Þórdís Timila, 11 ára.
Capacent Gallup sá um ráðningarferlið.