Færslur fyrir mars, 2007
Eighties-Eiríkur, skrítinn texti, duty free, réttindi dýra, Passíusálmar
Sá loks myndbandið með íslenska Evróvisjón laginu. Ég hef alltaf kunnað fjarska vel við Eirík Hauksson – hann er með skemmtilegustu mönnum – en ég held ekki að þetta atriði eigi eftir að ná langt. Sko, Evróvisjón gengur að miklu leyti út á ýkjur, skopstælingar og margæðni – ekki síst kynferðislega margræðni. Þetta myndi kannski [...]
Fundur í Stykkishólmi, zero Framsókn, mávadráp
Ég er kominn í Stykkishólm, í glampandi sól en frekar köldu veðri, sit hér í matsal hótelsins og horfi yfir Breiðafjörð. Myndin hérna sýnir útsýnið út um gluggann. Við erum með kosningafund um kvöldmatarleytið á vegum Stöðvar 2. Þetta er fyrsti fundurinn í hringferð okkar um landið – næsta miðvikudag verðum við á Akureyri. Þátturinn [...]
Óbundnir til kosninga
Nú er að koma sá tími að kjósendur vita ekki neitt lengur. Við göngum að kjörborði eftir einn og hálfan mánuð. En við vitum ekkert hvaða ríkisstjórn kemur upp úr kössunum. Getum í raun haft takmörkuð áhrif á það. Allir flokkanir ganga óbundnir til kosninga eins og það heitir í máli þeirra. Undanfarin ár virðist [...]
Dalurinn minn
Framtíðarlandið hugsar langt og grænt en svörin eru kannski ekki alltaf jafn skýr. Samkvæmt herferð Framtíðarlandsins eru þeir sem ekki eru sammála málflutningi þess gráir. Við erum góð og græn eru skilaboðin, hinir eru daprir og gráir. En eru meðlimir Framtíðarlandsins raunverulegir umhverfisverndarmenn eða ástunda þeir það sem kallast nimbyismi. Það er skammstöfun á hugtakinu [...]
Vinstri stjórn, græn framboð, flokksskrár, listi viljugra, kosningasjóðir
Ég fékk tölvubréf frá manni að norðan í dag. Hann skammaði mig fyrir að tala um að úrslit kosninganna í vor yrðu hugsanlega ákall á vinstri stjórn. Það er best að skýra málið aðeins. Vinstri græn og Samfylkingin hafa samanlagt verið með allt upp í 48 prósenta fylgi í skoðanakönnunum. Það er langmesta fylgi sem [...]
Kosningavélar, hönnuð atburðarás, risaþota, Stuðmenn í framboði
Nú er farið að ræsa kosningamaskínur víða um landið. Flokkarnir eiga misgóðar vélar. Vinstri grænir líklega einna lakasta. Það er spurning hvort það háir þeim eitthvað í kosningabaráttunni eða hvort siglingin á þeim sé slík að það skipti engu máli? Sjálfstæðisflokkurinn hefur löngum þótt eiga feiki öfluga kosningavél. Þar eru nú nýjir menn við stjórnvölinn, [...]
Sýknað vegna skopmynda, Íslandshreyfingin, fermingar og efnishyggja
Einhver undarlegasta uppákoma síðari ára er þegar allt það fólk sem á ensku kallast bleeding heart liberals fór að bera blak af ofstækismönnum sem heimtuðu að ritskoðaðar yrðu nokkrar skopmyndir. Aldrei hefur maður heyrt í jafn mörgu skilningsríku fólki – sem skildi það svo vel að múslimar hlytu að vera móðgaðir vegna teikninga af Múhameð [...]
Grunnnet, gamaldags skipulag, kosningablogg, Ebbi Sig
Míla heitir fyrirtæki sem hefur verið stofnað um rekstur grunnets Símans. Hefði kannski verið nær að láta það heita Kílómeter – mílur eru okkur Íslendingum framandi. Þetta er hið sama grunnet og ómögulegt var að skilja frá Símanum þegar hann var seldur. Maður skyldi varast að trúa öllu sem sagt er í pólitíkinni. Aðskilnaðurinn er [...]
Ónefndi maðurinn, sáttmáli Framtíðarlandsins, rauðljósahverfi
Hví má ekki segja nafn ónefnda mannsins í Baugsmálinu? Hvers vegna má ekki nefna hann? Hvaða launhelgar eru hér á ferðinni? Á þetta sér eðlilega skýringu eða er þetta eitthvað í anda júdaisma þar sem Guð hefur ýmis nöfn sem birta ólíkar hliðar hans, en sum eru svo heilög að ekki má segja þau upphátt? [...]
Eyðimörk í Evrópu, gamla góða Ísland, Ferguson, kynjaleiðrétting
Nú er Páll Bergþórsson að spá því að hækkun sjávarborðs verði miklu meiri en áætlað hefur verið – allt að heill meter. Þá er líklegt að Kvosin okkar í Reykjavík fari að líkjast Feneyjum. Annars hefur fjöldi manns verið að horfa á myndina The Great Global Warming Swindle – ég hef fengið ótal hvatningar um [...]