Hvað verður um Lesbókina?
Almennt virðast menn hafa trú á að miklar breytingar verði á Morgunblaðinu við ritstjóraskipti. Annað virðist óhjákvæmilegt í ljósi lesturs sem fer síminnkandi og viðvarandi taps á blaðinu.
Eigendur þess munu varla taka annað í mál. Í síðustu Gallupkönnun var lestur Moggans tæp 42 prósent, í könnun fyrir tveimur árum var hann 54 prósent. Botninn gæti sem hægast verið miklu neðar.
Eitt af því sem menn beina sjónum að er Lesbók Morgunblaðsins. Hún er afskaplega menningarleg að sönnu, en um leið hafa nokkuð þröng viðhorf fengið þar athvarf.
Lesbókin virðist vera helsta málgagn póstmódernista, póststrúktúralista, síðmarxista, kreddufullra umhverfisverndarsinna sem þola ekkert annað en skilyrðislausa fylgispekt við málstaðinn (grænt er hið nýja rautt) – semsagt viðhorfa sem eru býsna fjarri því borgaralega blaði sem Mogginn hefur frá upphafi talið sig vera.
Fær Lesbókin að lifa?
Ummæli ()
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is