Þriðjudagur 29.07.2008 - 08:28 - Ummæli ()

Þeim var ekki skapað nema að skilja

Ég minnist þess að stuttu eftir að Ólöf Guðný hafði tekið við embætti aðstoðarmanns borgarstjóra hafði ég boðið henni í Silfur Egils.

Hún þáði.

Stuttu fyrir þátt hafði hún samband og afboðaði sig. Þetta hefur gerst mjög sjaldan á löngum ferli þáttarins. Ég taldi víst að Ólafur F. hefði skipað henni að fara ekki.

Það kemur ekkert sérlega á óvart að samband þeirra entist svona illa. Nú er Ólafur ekki bara búinn að reka hana úr aðstoðarmannsdjobbinu heldur líka úr skipulagsráði.

Eftir Ólöfu Guðnýju liggja hin fleygu ummæli:

“Heiðarleiki borgarstjóra er hafinn yfir vafa.”

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is