Mánudagur 02.03.2009 - 22:27 - Ummæli ()

Upplýsingar, gegnsæjar og í rauntíma

Hjálmar Gíslason tölvumaður var í viðtali í Silfrinu í gær. Sýndi býsna merkilegt efni sem hann hefur tekið saman um efnahagshrunið og hvernig við hefðum hugsanlega verið betur stödd ef við hefðum haft aðgang að betri upplýsingum.

Til dæmis um peningamarkaðssjóðina, peningamagn í umferð, innlánsreikninga bankanna.

Hjálmar boðar í raun algjört gegnsæi, að reglan sé að upplýsingar eigi að vera aðgengilegar í skiljanlegu formi – og í rauntíma.

Hér er tengill á DataMarket, vef fyrirtækis Hjálmars.

Og hér er tengill á Gagnatorg um íslenskan efnahag sem DataMarket er að koma á laggirnar.

Hérna er svo hlekkur á viðtalið við Hjálmar, á vef Láru Hönnu.

«
»

Ummæli ()

Birta

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli. Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is