Mánuður: maí 2015
Murdoch snýr við blaðinu – styður áframhaldandi aðild að ESB
Þetta eru líklega einhver stærstu tíðindi í breskri pólitík lengi. Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch lýsir því yfir að hann vilji ekki að Bretland gangi úr Evrópusambandinu. Fjölmiðlar Murdochs hafa gríðarleg áhrif í Bretlandi – ekki síst á kjósendur sem hafa litla menntun. Þeir hafa lengi úthúðað Evrópusambandinu en nú snýr Murdoch við blaðinu og telur að […]
Stéttaskipting af völdum krónunnar
Skipta má þjóðinni niður í þrjá hópa eftir því hvaða gjaldmiðli þeir hafa aðgang að. Þetta segir Andri Geir Arinbjarnarson í nýjum pistli hér á Eyjunni. Það er ansi mikilvægt að skilja þetta nú þegar verið er að gera kjarasamninga. Í fyrsta flokki eru, samkvæmt Andra, þeir sem hafa óheftan aðgang að erlendum gjaldeyri: Þeir […]
Matarmarkaður þarf birtu og loft
Hverfið í kringum Hlemm á mikla framtíð fyrir sér. Íbúum þar fjölgar mjög, hótel rísa – miðborgarlíf færist þangað uppeftir. Það er allt öðruvísi útlits þarna en fyrir nokkrum árum, nýir veitingastaðir og litlar búðir opna. Nú ætlar borgin að taka yfir hús biðstöðvarinnar á Hlemmi sem hefur verið í umsjá Strætó. Það er ágætt. […]
Er formúlan kannski ekki til?
Eftir langan tíma þar sem hún hefur verið að sökkva, er hugsanlegt að ríkissjórnin hafi náð viðspyrnu með nýjum kjarasamningum og skattabreytingum og átaki í húsnæðismálum sem er boðað í tengslum við þá. Ef verðbólga fer af stað eftir þessa kjarasamninga og ónýtir þá er það enn ein sönnun þess að íslenska krónan dugir ekki […]
Economist: Bandaríkin þurfa að taka harðar á fjármálaglæpum
Bandaríkin meðhöndla fjármálaglæpi með mjög óskýrum hætti, svo mildum að það er skaðlegt, má lesa í leiðara í síðasta hefti Economist. Blaðið bendir á að eftir fjármálahrunið mikla 2007-2008 hafi enginn meiriháttar bankastjóri verið settur í fangelsi. Þetta er ólíkt því sem var í sparisjóðahruninu á níunda áratugnum þegar um 1000 manns voru dregin fyrir […]
Karl gerir Sigmundi engan greiða
Stjórnmálaleiðtogar þurfa að vera sterkir og þeir þurfa líka að virðast vera sterkir. Það er nú svo skrítið að stjórnmálamenn geta stundum virst sterkir þegar þeir játa á sig mistök eða segja að þeir viti ekki allt. Þetta virðast fáir skilja í íslenskri pólitík. En það er ekki gott fyrir stjórnmálamenn þegar þeir eru orðnir […]
Er það tóm vitleysa að fólk hafi það svo gott?
Þegar Gunnar Smári Egilsson var á DV á níunda áratugnum var hann afar óvinsæll í fjármálaráðuneytinu. Þar sátu á þeim tíma menn eins og Jón Baldvin og Ólafur Ragnar. Ráðuneytismönnum leiddist Gunnar Smári. Hann var nefnilega síreiknandi og verandi býsna talnaglöggur rak hann þá stundum á gat. Nú er Gunnar Smári aftur kominn á stúfana […]